Fréttir

true

Ungliðar björgunarsveita á æfingu

Það var margt um manninn í Heiðmörk síðastliðinn laugardag þegar rúmlega 70 unglingar frá unglingadeildum Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi tóku þátt í leitaræfingu sem umsjónarmenn unglinganna höfðu skipulagt. Leitaræfingin snérist fyrst og fremst um að sýna unglingunum hvernig leitarhópar frá mismunandi svæðum og einingum vinna saman, hvernig allir tilheyra sömu heildinni þrátt fyrir mismunandi…Lesa meira

true

Afleit veðurspá fyrir norðvestur hluta landsins

Gul viðvörun er nú í gildi fyrir Breiðafjörð allt til hádegis á morgun, föstudag, en þar verður norðaustan 15-23 m/s og snjókoma eða slydda. Búast má við slæmu skyggi og versnandi færð. Appelsínugul viðvörun er fyrir Vestfirði þar sem spáð er stórhríð og samhliða snjóflóðahættu. Vegagerðin bendir á að vegna veðurs verður veginum yfir Holtavörðuheiði…Lesa meira

true

Fór ekki eftir fyrirmælum lögreglu

Afskipti voru höfð af 33 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Þar af mældist einn innanbæjar í Borgarnesi á nærri tvöföldum hámarkshraða þar sem hámarkshraði er 30 km/klst. Meint hraðabrot 49 ökumanna voru mynduð með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Tveir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur síðastliðna viku.…Lesa meira

true

Sungið með Hallgrími og samtímanum

Þriðjudaginn í dymbilviku, 26. mars kl. 20, verður sálmakvöld í Hallgrímskirkju í Saurbæ þar sem Sálmaband Dómkirkjunnar kemur fram. „Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og kynnast og syngja saman sálma við texta Hallgríms Péturssonar og nýja sálma úr hinni nýútkomnu sálmabók kirkjunnar. Kór Saurbæjarprestakalls leiðir sönginn styrkum röddum,“ segir í tilkynningu. Sálmaband Dómkirkjunnar er…Lesa meira

true

Skagamenn í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur á Val

Valur og ÍA áttust við í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á N1 vellinum að Hlíðarenda. Albert Hafsteinsson kom Skagamönnum yfir á 13. mínútu er hann fékk nægan tíma til þess að athafna sig inn í vítateig Valsmanna og skoraði með hnitmiðuðu skoti í fjærhornið. Fimm mínútum fyrir hálfleik…Lesa meira

true

Úthlutun úr Íþróttasjóði 2024

Íþróttanefnd, sem heyrir undir mennta- og barnamálaráðuneytið, hefur ákveðið að úthluta 27,9 milljónum til 74 verkefna á landsvísu fyrir árið 2024. Nefndinni bárust 179 umsóknir að upphæð rúmlega 250 milljónir króna vegna ársins 2024. 76 aðilar hljóti styrkveitingar fyrir síðasta ár. Alls er lagt til að 32 umsóknir verði styrktar úr flokknum Aðstaða, 34 úr…Lesa meira

true

Leikklúbbur Laxdæla æfir verkið Blessað barnalán

Leikklúbbur Laxdæla í Dalabyggð var stofnaður 1971. Félagið var vel virkt fyrstu árin en í seinni tíð lagðist starfið í smá dvala. Það var svo í fyrra sem tónninn var sleginn að nýju og Vodkakúrinn eftir Kikku var færður á svið fyrir yfir 450 áhorfendur. Hlaut félagið m.a. styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og Uppbyggingarsjóði Vesturlands…Lesa meira

true

Spenna að hefja sjóbirtingsveiðina í Leirá

„Jú, við munum opna Leirá í sjóbirtingsveiðinni; ég, Harpa og Matthías eins og fyrir ári síðan. Opnunin í fyrra var flott,“ segir Stefán Sigurðssson um opnun Leirár í Leirárveit en áin hefur verið opnuð með stæl síðustu árin og gefið marga og fallega fiska. Sjóbirtingsveiðin hefst mánudaginn 1. apríl og eru veiðimenn margir hverjir orðnir…Lesa meira

true

Rúta og flutningabíll lentu saman á Vatnaleið

Síðdegis í dag rákust saman flutningabíll og rúta norðan megin á Vatnaleið á Snæfellsnesi. Bílarnir lentu ekki framan á hvorum öðrum, en við áreksturinn fór vinstri hlið rútunnar illa og brotnuðu þar allar rúður. Færð var erfið á heiðinni; hálka og talsverður skafrenningur þegar slysið varð. Fjölmennt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang, meðal annars…Lesa meira

true

Lögregla varar við grunsamlegum mannaferðum

Lögreglan á Vesturlandi sendi í gær frá sér tilkynningu þess efnis að síðustu daga hafi orðið vart við grunsamlegar mannaferðir á Akranesi. Lögregla óskaði eftir því að fólk hefði samband strax við lögreglu í gegnum 112, ef það yrði vart við grunsamlegar mannaferðir og bætti við sama á hvaða tíma sólarhringsins það væri. Samkvæmt heimildum…Lesa meira