
Sungið með Hallgrími og samtímanum
Þriðjudaginn í dymbilviku, 26. mars kl. 20, verður sálmakvöld í Hallgrímskirkju í Saurbæ þar sem Sálmaband Dómkirkjunnar kemur fram. „Allir eru hjartanlega velkomnir að koma og kynnast og syngja saman sálma við texta Hallgríms Péturssonar og nýja sálma úr hinni nýútkomnu sálmabók kirkjunnar. Kór Saurbæjarprestakalls leiðir sönginn styrkum röddum,“ segir í tilkynningu.