Fréttir

true

Sundfélag Akraness hélt aðalfund sinn

Aðalfundur Sundfélags Akraness fór fram síðasta fimmtudag á Jaðarsbökkum. Anna Leif Elídóttir stýrði fundinum en samkvæmt lögum félagsins fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Formaður félagsins, Valdimar Ingi Brynjarsson, flutti skýrslu stjórnar fyrir árið 2023 þar sem meðal annars var farið yfir gott gengi sundfólksins, mótin sem sótt voru, æfingabúðir og margt fleira. Fram kom í skýrslunni…Lesa meira

true

Djúpgámar eru að ryðja sér til rúms á Akranesi

Akraneskaupstaður hefur nú sett niður djúpgáma við tvær stofnanir bæjarins; Grundaskóla og leikskólann Garðasel. Í báðum tilfellum eru settir niður fimm djúpgáma einingar og í þá flokkað málmumbúðir, blandaður úrgangur, pappi, endurvinnsluefni og lífrænn úrgangur (matarleifar). Þá stefnir hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði á að breyta sorpgámum við heimilið í sambærilega djúpgáma. Að sögn Lárusar Ársælssonar…Lesa meira

true

Þrjú sem fengu flestar tilnefningar til biskupskjörs

Tilnefningum til embættis biskups Íslands lauk á hádegi í dag. Á vef Þjóðkirkjunnar segir að þeir þrír aðilar sem flestar tilnefningar hlutu hafi verið: Sr. Guðrún Karls Helgudóttir (65), Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson (60) og Sr. Elínborg Sturludóttir (52). Á tilnefningarskrá voru 167 en af þeim tilnefndu 160 eða 95,81%. Alls voru 48 prestar tilnefndir.…Lesa meira

true

Heimaleikurinn hlaut áhorfendaverðlaun í Glasgow

Íslenska fótbolta heimildamyndin Heimaleikurinn var heiðruð á kvikmyndahátíðinni í Glasgow um síðustu helgi þar sem hún hlaut áhorfendaverðlaunin á lokaathöfn í Glasgow Film Theatre.  Áhorfendaverðlaunin eru aðal verðlaun hátíðarinnar og var Heimaleikurinn tilnefnd ásamt sjö öðrum myndum á stjörnum prýddri hátíðinni. Myndin var eina heimildarmyndin í flokki tilnefndra en meðal þeirra kvikmynda sem einnig voru…Lesa meira

true

Fjölga deildum við leikskólann Teigasel

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag kom fram að um miðjan mars fer fram innritun í leikskóla á Akranesi fyrir starfsárið 2024-2025. Skóla- og frístundaráð hefur ákveðið viðmiðunaraldur yngstu barna við innritun í leikskóla haustið 2024. Foreldrar barna fædd til og með 30. júní 2023 geta sótt um fyrir börn sín og verður…Lesa meira

true

Andlát – Páll Bergþórsson

Páll Bergþórsson, veðurfræðingur og fyrrverandi veðurstofustjóri, er látinn á 101. aldursári. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 10. mars síðastliðinn eftir stutt veikindi. Páll fæddist að Fljótstungu í Hvítársíðu 13. ágúst 1923. Foreldrar Páls voru Kristín Pálsdóttir f. 1885 og Bergþór Jónsson f. 1887, bændur í Fljótstungu. Fyrir áttu þau tvær stúlkur; Guðrúnu sem…Lesa meira

true

Fundaröð um framtíð Breiðafjarðar

Í gær fór fram fyrsti fundur af þremur um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar. Tillögur stýrihóps voru kynntar ásamt kynningu á skýrslu sem nefnist „Hagrænt virði Breiðafjarðar,“ eftir Vífil Karlsson hagfræðing. Á síðari hluta fundar fóru fram umræður í hópum en um 50 manns sóttu fundinn. Samkvæmt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, fundarstjóra, er mikilvægt að sækja í þekkingabrunninn sem…Lesa meira

true

Heimsmeistari í flutningi Einars Kárasonar

Næstkomandi laugardag verður frumsýning á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi þar sem Einar Kárason stígur á stokk og segir söguna um Heimsmeistarann, Bobby Fischer. „Heimsmeistari er kynngimögnuð frásögn um glataðan snilling sem er ævifangi síns hrjúfa lundernis,“ segir í kynningu. „Í miðju köldu stríði öttu fulltrúar austurs og vesturs kappi við skákborðið í smáborginni Reykjavík. Heimsmeistaratitill…Lesa meira

true

Keilufélag Akraness með tvo sigurvegara á Íslandsmóti unglinga

Dagana 9.-10. mars sl. var haldið Íslandsmót unglinga í keilu og fór það fram í Keiluhöllinni í Reykjavík. Keilufélag Akraness átti marga fulltrúa sem stóðu sig vel allir sem einn, sérstaklega í ljósi aðstöðuleysis hjá félaginu sem sækir allar æfingar og keppni til Reykjavíkur og ferðaþreyta farin að segja til sín. Í 5. flokki pilta…Lesa meira

true

Sveit Aldursforsetans bar sigur úr býtum

Í gærkvöldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Þátttaka var góð, eða níu sveitir. Strax í upphafi móts setti sveit Aldursforsetans stefnuna á toppinn og var sigur sveitarinnar býsna afgerandi þegar upp var staðið. Aldursforsetinn, hinn síungi 86 ára Sveinn Hallgrímsson, gerði gott mót því hann og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson makker hans urðu efstir í…Lesa meira