
Fimm djúpgámar framan við Grundaskóla. Frá þeim hefur verið haganlega gengið og eru í raun til prýði í umhverfinu. Ljósm. mm
Djúpgámar eru að ryðja sér til rúms á Akranesi
Akraneskaupstaður hefur nú sett niður djúpgáma við tvær stofnanir bæjarins; Grundaskóla og leikskólann Garðasel. Í báðum tilfellum eru settir niður fimm djúpgáma einingar og í þá flokkað málmumbúðir, blandaður úrgangur, pappi, endurvinnsluefni og lífrænn úrgangur (matarleifar). Þá stefnir hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði á að breyta sorpgámum við heimilið í sambærilega djúpgáma. Að sögn Lárusar Ársælssonar umhverfisstjóra á skipulags- og umhverfissviði Akraneskaupstaðar hefur ekki verið tekin ákvörðun um að setja djúpgáma á fleiri staði í bænum. Þeim mun hins vegar fjölga við fjölbýlishús eins og þegar má sjá við nokkur slík.