Frá aðalfundinum. Ljósm. SA

Sundfélag Akraness hélt aðalfund sinn

Aðalfundur Sundfélags Akraness fór fram síðasta fimmtudag á Jaðarsbökkum. Anna Leif Elídóttir stýrði fundinum en samkvæmt lögum félagsins fóru fram venjuleg aðalfundarstörf. Formaður félagsins, Valdimar Ingi Brynjarsson, flutti skýrslu stjórnar fyrir árið 2023 þar sem meðal annars var farið yfir gott gengi sundfólksins, mótin sem sótt voru, æfingabúðir og margt fleira.

Sundfélag Akraness hélt aðalfund sinn - Skessuhorn