Efstu þrjár sveitir fengu áletraðar kaffikrúsir að launum og Bötler parið ölkrúsir að auki. Ljósm. mm

Sveit Aldursforsetans bar sigur úr býtum

Í gærkvöldi lauk aðalsveitakeppni Bridgefélags Borgarfjarðar í Logalandi. Þátttaka var góð, eða níu sveitir. Strax í upphafi móts setti sveit Aldursforsetans stefnuna á toppinn og var sigur sveitarinnar býsna afgerandi þegar upp var staðið. Aldursforsetinn, hinn síungi 86 ára Sveinn Hallgrímsson, gerði gott mót því hann og Eyjólfur Kristinn Örnólfsson makker hans urðu efstir í Bötler með 1,44 í skor. Í öðru sæti í Bötlernum urðu liðsfélagar þeirra í sveit; Guðmundur Ólafsson og Sveinbjörn Eyjólfsson með 1,19. Sveit Aldursforsetans hlaut 134,27 í heildar stig á mótinu.

Sveit Aldursforsetans bar sigur úr býtum - Skessuhorn