Svipmynd af fundinum í Stykkishólmi. Ljósm. sá

Fundaröð um framtíð Breiðafjarðar

Í gær fór fram fyrsti fundur af þremur um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar. Tillögur stýrihóps voru kynntar ásamt kynningu á skýrslu sem nefnist „Hagrænt virði Breiðafjarðar,“ eftir Vífil Karlsson hagfræðing. Á síðari hluta fundar fóru fram umræður í hópum en um 50 manns sóttu fundinn. Samkvæmt Sigurborgu Kr. Hannesdóttur, fundarstjóra, er mikilvægt að sækja í þekkingabrunninn sem er til staðar, en mjög líflegar umræður fóru fram í hópavinnunni. Teknar verða saman allar þær hugmyndir/athugasemdir sem hóparnir skiluðu af sér og fer svo stýrihópur yfir allt efni eftir að öllum fundunum er lokið.

Fundaröð um framtíð Breiðafjarðar - Skessuhorn