
Síðasta föstudagskvöld var haldin Höfðagleði á hjúkrunar- og dvalarheimilinu við Sólmundarhöfða á Akranesi. Þar komu saman fyrrverandi og núverandi starfsfólk ásamt núverandi heimilisfólki. Þriggja rétta kvöldverður var í boði, happdrætti með veglegum vinningum og skemmtiatriði. Veislustjóri var Gísli Gíslason fyrrum bæjarstjóri og fór hann á kostum að sögn viðstaddra.Lesa meira








