Fréttir

true

Hlaupadýrin sem Snorri hefur grandað orðin 1001

Snorri Jóhannesson á Augastöðum í Borgarfirði hefur í áratugi samhliða öðrum störfum verið refaskytta í uppsveitunum. Snorri greinir frá því að nú um helgina hafi hann náð þeim áfanga að skjóta 1001. hlaupadýrið, með tveimur læðum sem hann skaut eftir að hafa lagt út æti. Þess má geta að hlaupadýr eru refir sem skotnir eru…Lesa meira

true

Björgvin Þór og Jóna Margrét alla leið í úrslit

Fjórði og næstsíðasti þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Í þættinum fluttu keppendurnir fjórir tvö lög hver, eitt ástarlag og annað lag sem dómararnir höfðu valið fyrir þá. Stefán Óli Magnússon fékk það erfiða hlutskipti að vera sendur heim eftir…Lesa meira

true

Lagðar til róttækar breytingar á skólahaldi á Varmalandi

Á fundi fræðslunefndar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag lagði sviðsstjóri fjölskyldusviðs fram minnisblað um framtíðarsýn varðandi skólamál á Varmalandi í Stafholtstungum fyrir næstu ár. Inntakið í tillögunni er að frá og með næsta hausti verði leikskóli starfræktur á Varmalandi, sem og kennsla 1.-4. bekkja grunnskólans, auk frístundar. Í tillögunni felst að hætt verður að reka leikskóla Hjallastefnunnar…Lesa meira

true

Skallagrímur með öruggan sigur á Þrótti Vogum

Skallagrímur og Þróttur Vogum tókust á í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardaginn og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Fresta þurfti leiknum kvöldið áður vegna slæmra veðurskilyrða en allt var dottið í dúnalogn á laugardeginum og leikmenn klárir í slaginn. Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 11:7 Skallagrími í vil…Lesa meira

true

Mat á námi og starfsréttindum nú á island.is

Þjónustugátt fyrir mat á námi og starfsréttindum hefur verið opnuð á Island.is. Markmiðið er að bæta aðgengi fólks, hvort sem það eru útlendingar eða Íslendingar, að þeim aðilum sem hafa með mat á menntun að gera. Um er að ræða stórt skref til einföldunar fyrir þá sem þurfa á mati að halda því loks geta þeir…Lesa meira

true

Þátttakendur í Vesturbrú kynntu nýsköpunarverkefni sín

Síðastliðinn fimmtudag fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi lokaviðburður viðskiptahraðals sem nefnist Vesturbrú. Þar fluttu átta frumkvöðlateymi kynningu á verkefnum sínum fyrir gesti. Þetta var í fyrsta sinn sem farið er af stað með viðskiptahraðal af þessu tagi á Vesturlandi. Bakhjarlar verkefnisins eru SSV, Nývest, Sóknaráætlun Vesturlands og Gleipnir. Svava Björk Ólafsdóttir hjá RATA var…Lesa meira

true

Leita upplýsinga um gullhúðun EES reglna

Starfshópur um aðgerðir gegn gullhúðun, sem skipaður var af utanríkisráðherra 25. janúar síðastliðinn, hefur tekið til starfa og óskar nú eftir ábendingum í Samráðsgátt um tilvik þar sem gullhúðun hefur verið beitt. Þá er óskað eftir mati viðkomandi á þeim áhrifum sem hlotist hafa af slíkri reglusetningu. Umsagnarfrestur er til 26. febrúar næstkomandi. Með gullhúðun…Lesa meira

true

Nýir eigendur taka við versluninni Bjargi á Akranesi

Komið er að tímamótum hjá eigendum verslunarinnar Bjargs á Akranesi, hjónunum Ástu Björgu Gísladóttur og Örlygi Stefánssyni, þar sem þau hafa nú selt fyrirtækið og rekstur verslunarinnar. Kaupendur eru hjónin Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson en Rán hefur starfað í versluninni síðastliðin tvö ár og ættu viðskiptavinir Bjargs að þekkja til hennar. Ásta og Örlygur…Lesa meira

true

Verkefni tengd veðrinu að kvöldi föstudags

Föstudagskvöldið og aðfararnótt laugardags var annasamur tími hjá björgunarsveitum víða um land, en þá gekk lægð yfir landið. Um klukkan 20:30 um kvöldið var tilkynnt um flutningabíl sem hafði oltið á Laxárdalsheiði og voru björgunarsveitir á Hvammstanga og Búðardal sendar á vettvang. Í ljós kom að eftirvagn bílsins hafði oltið og þveraði hann veginn. Í…Lesa meira

true

Leiknefnd býður upp á kaffihúsadaga í Logalandi

Leiknefnd Ungmennafélags Reykdæla ætlar að halda kaffihúsadaga í Logalandi nokkra sunnudaga fram að vori. Þar verða sýndar upptökur frá gömlum leikverkum sem sett hafa verið upp í Logalandi. Sunnudaginn 11. febrúar verður fyrsta kvöldið. Þá verður sýnt verkið Æsir og þursar í leikstjórn Flosa Ólafsson en það voru nemendur Kleppjárnsreykjaskóla sem skipuðu leikhópinn. Einnig verður…Lesa meira