
Þátttakendur í Vesturbrú kynntu nýsköpunarverkefni sín
Síðastliðinn fimmtudag fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi lokaviðburður viðskiptahraðals sem nefnist Vesturbrú. Þar fluttu átta frumkvöðlateymi kynningu á verkefnum sínum fyrir gesti. Þetta var í fyrsta sinn sem farið er af stað með viðskiptahraðal af þessu tagi á Vesturlandi. Bakhjarlar verkefnisins eru SSV, Nývest, Sóknaráætlun Vesturlands og Gleipnir. Svava Björk Ólafsdóttir hjá RATA var fengin til að leiða verkefnið en henni til aðstoðar voru atvinnuráðgjafarnir Helga Guðjónsdóttir og Hrafnhildur Tryggvadóttir hjá SSV. Sambærilegir viðskiptahraðlar hafa áður verið settir af stað á nokkrum stöðum hér á landi en áherslan fyrir þennan hraðal var sjálfbærni. Fram kom á hátíðinni að þegar auglýst var eftir þátttakendum í viðskiptahraðlinum stóð ekki á áhuga. 16 umsóknir bárust og voru í upphafi tíu teymi valin til þátttöku en átta luku vinnunni. Það er því ljóst að talsverð gróska er í nýsköpun í landshlutanum. Sum verkefnin sem kynnt voru eru þegar hafin en önnur eru við það að verða að veruleika. Öll stuðla þau að atvinnusköpun á Vesturlandi.