
Jóna Margrét, Björgvin Þór og Anna Fanney keppa til úrslita í Idol 2024. Ljósm. stod2.is
Björgvin Þór og Jóna Margrét alla leið í úrslit
Fjórði og næstsíðasti þáttur útsláttarkeppni Idol söngkeppninnar fór fram á föstudagskvöldið í Idolhöllinni að Fossaleyni og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Í þættinum fluttu keppendurnir fjórir tvö lög hver, eitt ástarlag og annað lag sem dómararnir höfðu valið fyrir þá. Stefán Óli Magnússon fékk það erfiða hlutskipti að vera sendur heim eftir símakosninguna í þættinum og hann gat ekki leynt vonbrigðum sínum. Þrír keppendur standa nú eftir og keppast því um að verða næsta Idolstjarna Íslands. Það eru Vestlendingarnir Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir og sá þriðji er Anna Fanney Kristinsdóttir.