
Eigendaskiptin eru yfirstaðin. F.v. Örlygur, Ásta, Rán og Fannar. Ljósm. aðsend
Nýir eigendur taka við versluninni Bjargi á Akranesi
Komið er að tímamótum hjá eigendum verslunarinnar Bjargs á Akranesi, hjónunum Ástu Björgu Gísladóttur og Örlygi Stefánssyni, þar sem þau hafa nú selt fyrirtækið og rekstur verslunarinnar. Kaupendur eru hjónin Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson en Rán hefur starfað í versluninni síðastliðin tvö ár og ættu viðskiptavinir Bjargs að þekkja til hennar.