
Hópurinn sem kom að uppsetningu á Æsir og þursar. Ljósmyndir: Guðlaugur Óskarsson
Leiknefnd býður upp á kaffihúsadaga í Logalandi
Leiknefnd Ungmennafélags Reykdæla ætlar að halda kaffihúsadaga í Logalandi nokkra sunnudaga fram að vori. Þar verða sýndar upptökur frá gömlum leikverkum sem sett hafa verið upp í Logalandi. Sunnudaginn 11. febrúar verður fyrsta kvöldið. Þá verður sýnt verkið Æsir og þursar í leikstjórn Flosa Ólafsson en það voru nemendur Kleppjárnsreykjaskóla sem skipuðu leikhópinn. Einnig verður myndasýning sem fróðlegt verður að skoða.