Fréttir

true

Skallagrímur með öruggan sigur á Þrótti Vogum

Skallagrímur og Þróttur Vogum tókust á í 1. deild karla í körfuknattleik á laugardaginn og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Fresta þurfti leiknum kvöldið áður vegna slæmra veðurskilyrða en allt var dottið í dúnalogn á laugardeginum og leikmenn klárir í slaginn. Þegar fimm mínútur voru liðnar af leiknum var staðan 11:7 Skallagrími í vil…Lesa meira

true

Mat á námi og starfsréttindum nú á island.is

Þjónustugátt fyrir mat á námi og starfsréttindum hefur verið opnuð á Island.is. Markmiðið er að bæta aðgengi fólks, hvort sem það eru útlendingar eða Íslendingar, að þeim aðilum sem hafa með mat á menntun að gera. Um er að ræða stórt skref til einföldunar fyrir þá sem þurfa á mati að halda því loks geta þeir…Lesa meira

true

Þátttakendur í Vesturbrú kynntu nýsköpunarverkefni sín

Síðastliðinn fimmtudag fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi lokaviðburður viðskiptahraðals sem nefnist Vesturbrú. Þar fluttu átta frumkvöðlateymi kynningu á verkefnum sínum fyrir gesti. Þetta var í fyrsta sinn sem farið er af stað með viðskiptahraðal af þessu tagi á Vesturlandi. Bakhjarlar verkefnisins eru SSV, Nývest, Sóknaráætlun Vesturlands og Gleipnir. Svava Björk Ólafsdóttir hjá RATA var…Lesa meira

true

Leita upplýsinga um gullhúðun EES reglna

Starfshópur um aðgerðir gegn gullhúðun, sem skipaður var af utanríkisráðherra 25. janúar síðastliðinn, hefur tekið til starfa og óskar nú eftir ábendingum í Samráðsgátt um tilvik þar sem gullhúðun hefur verið beitt. Þá er óskað eftir mati viðkomandi á þeim áhrifum sem hlotist hafa af slíkri reglusetningu. Umsagnarfrestur er til 26. febrúar næstkomandi. Með gullhúðun…Lesa meira

true

Nýir eigendur taka við versluninni Bjargi á Akranesi

Komið er að tímamótum hjá eigendum verslunarinnar Bjargs á Akranesi, hjónunum Ástu Björgu Gísladóttur og Örlygi Stefánssyni, þar sem þau hafa nú selt fyrirtækið og rekstur verslunarinnar. Kaupendur eru hjónin Rán Kristinsdóttir og Fannar Baldursson en Rán hefur starfað í versluninni síðastliðin tvö ár og ættu viðskiptavinir Bjargs að þekkja til hennar. Ásta og Örlygur…Lesa meira

true

Verkefni tengd veðrinu að kvöldi föstudags

Föstudagskvöldið og aðfararnótt laugardags var annasamur tími hjá björgunarsveitum víða um land, en þá gekk lægð yfir landið. Um klukkan 20:30 um kvöldið var tilkynnt um flutningabíl sem hafði oltið á Laxárdalsheiði og voru björgunarsveitir á Hvammstanga og Búðardal sendar á vettvang. Í ljós kom að eftirvagn bílsins hafði oltið og þveraði hann veginn. Í…Lesa meira

true

Leiknefnd býður upp á kaffihúsadaga í Logalandi

Leiknefnd Ungmennafélags Reykdæla ætlar að halda kaffihúsadaga í Logalandi nokkra sunnudaga fram að vori. Þar verða sýndar upptökur frá gömlum leikverkum sem sett hafa verið upp í Logalandi. Sunnudaginn 11. febrúar verður fyrsta kvöldið. Þá verður sýnt verkið Æsir og þursar í leikstjórn Flosa Ólafsson en það voru nemendur Kleppjárnsreykjaskóla sem skipuðu leikhópinn. Einnig verður…Lesa meira

true

Loðnumælingum fram haldið eftir helgi

Haldið verður aftur af stað til loðnumælinga á mánudaginn en síðustu loðnumælingaleit lauk 23. janúar sl. Fyrirhugað var að rannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200  færi til mælinga ásamt veiðiskipunum Ásgrími Halldórsyni og Polar Ammassak. Við botnskoðun á Árna í slipp í Hafnarfirði nú í vikunni kom hins vegar fram olíuleki með driföxli sem gera þarf…Lesa meira

true

Meistaraflokkur ÍA með treyjulottó

Hvern langar ekki að eignast treyju frá frægu knattspyrnufólki sem hefur verið notuð í keppnisleik? Meistaraflokkur ÍA í knattspyrnu kvenna stendur fyrir treyjulottói þar sem fólk á möguleika á að vinna eina slíka, jafnvel tvær. Úrvalið er gríðarlegt af nýjum og gömlum treyjum frá frábæru knattspyrnufólki sem hefur gefið treyjur til styrktar kvennaliði ÍA. Alls…Lesa meira

true

KFÍA og Norðurál endurnýja samning til næstu þriggja ára

Knattspyrnufélag ÍA og Norðurál hafa endurnýjað styrktarsamning sinn til næstu þriggja ára. Norðurál hefur síðan árið 2010 verið aðalstuðningsaðili félagsins og segir í frétt á FB síðu félagsins að það sé mikið gleðiefni að næstu þrjú árin hið minnsta muni merki Norðuráls prýða treyju félagsins. Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls sagði við þetta tilefni: „Við hjá…Lesa meira