
KFÍA og Norðurál endurnýja samning til næstu þriggja ára
Knattspyrnufélag ÍA og Norðurál hafa endurnýjað styrktarsamning sinn til næstu þriggja ára. Norðurál hefur síðan árið 2010 verið aðalstuðningsaðili félagsins og segir í frétt á FB síðu félagsins að það sé mikið gleðiefni að næstu þrjú árin hið minnsta muni merki Norðuráls prýða treyju félagsins.