
Á loðnuveiðum. Ljósm. úr safni/ Friðþjófur Helgason
Loðnumælingum fram haldið eftir helgi
Haldið verður aftur af stað til loðnumælinga á mánudaginn en síðustu loðnumælingaleit lauk 23. janúar sl. Fyrirhugað var að rannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 200 færi til mælinga ásamt veiðiskipunum Ásgrími Halldórsyni og Polar Ammassak. Við botnskoðun á Árna í slipp í Hafnarfirði nú í vikunni kom hins vegar fram olíuleki með driföxli sem gera þarf við, m.a. til að koma í veg fyrir mengun, og getur hann því ekki tekið þátt í verkefninu.