Fréttir

true

„Við ætlum bara að dúlla okkur“

Segja hjónin Steini og Ella sem ætla að hætta rekstri í vor Fyrirtækið Rammar og myndir á Akranesi hefur verið starfrækt frá árinu 1997 eða í næstum 27 ár. Hjónin Steinn Mar Helgason og Elín Klara Svavarsdóttir hafa verið eigendur Ramma & mynda frá upphafi. Þau keyptu núverandi húsnæði á Skólabraut 27 árið 1998 en…Lesa meira

true

Lönduðu þúsund tonnum af salti

Flutningaskipið Falksea lagðist að bryggju í Grundarfirði í síðustu viku og hófst uppskipun skömmu eftir að spottarnir höfðu verið tryggðir. Alls voru um eitt þúsund tonnum af salti skipað upp og fór megnið af því í saltskemmuna og hluti í vinnsluna hjá Soffaníasi Cecilsyni hf. Unnið var sleitulaust þar til verkinu var lokið og skipið…Lesa meira

true

Þorramót í Ringó var spilað í Borgarnesi

Sunnudaginn 28. janúar sl. fór fram í Íþróttahúsinu í Borgarnesi þorramót í ringó. Alls mættu til leiks átta lið; eitt frá HSK, tvö frá Glóðinni/Kópavogi, eitt frá FaMos/Mosfellsbæ, tvö frá USVH/ Vestur – Húnvetningar og tvö lið frá heimamönnu í UMSB. Allir léku við alla og því voru spilaðir 28 leikir þar sem spilað var…Lesa meira

true

Endurnýja samstarfssamning um leit og björgun á Faxaflóa

Endurnýjað hefur verið samstarf nokkurra aðila um gagnkvæma aðstoð vegna björgunar og aðstoðar við sjófarendur á Faxaflóa. Að samkomulaginu standa Faxaflóahafnir, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Björgunarbátasjóður Reykjavíkur, Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Björgunarfélag Akranes og Björgunarsveitin Brák. Í tilkynningu segir að markmið samkomulagsins sé að stuðla að samstarfi og eins góðum viðbúnaði björgunaraðila og kostur er við Faxaflóa.…Lesa meira

true

Þekkir einhver nöfnin?

Skessuhorni barst beiðni frá Huldu á Fitjum í Skorradal um að birta þessar myndir sem líklega eru báðar af sama nemendahópnum við Kleppjárnsreykjaskóla. Huldu langar að fá upplýsingar um hverjir eru á myndunum, en líklega eru þetta árgangar 55-57 um það bil. Hún kveðst hafa reynt á mátt Facebook, en það ekki skilað árangri. Hulda…Lesa meira

true

Eldur kom upp í bifreið í göngunum

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku hafnaði bifreið út af við gatnamótin þar sem Brattabrekka og Vesturlandsvegur mætast en ekki urðu slys á fólki. Önnur bifreið hafnaði út af við Grundartanga og var ökumaður fluttur á brott með sjúkrabifreið til aðhlynningar. Bifreiðar höfnuðu einnig út af á Borgarfjarðarbraut og á Vesturlandsvegi við Sveinatungu…Lesa meira

true

Blá ljós í notkun

Þrátt fyrir vetrarfærð voru afskipti höfð af tólf ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Einnig voru 28 ökumenn myndaðir með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum vegna gruns um ölvun við…Lesa meira

true

Hvalur sækir um endurnýjun leyfis

Hvalur hf. hefur óskað eftir því við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun. Minnt er á að með vísan til nýlegs álits umboðsmanns Alþingis er samkvæmt stjórnarskrá öllum frjálst að stunda þá atvinnugrein sem þeir kjósa og verði það frelsi aðeins skert með…Lesa meira

true

Gul viðvörun við Faxaflóa frá klukkan 13-19 í dag

Í dag er gert ráð fyrir vestan 8-15 m/s og víða éljum á landinu, en 15-23 m/sek sunnanlands eftir hádegi og þar verður gul viðvörun í gildi. Á spásvæðinu Faxaflóa verður vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Þar er gul viðvörun frá klukkan 13 til 19 í dag. Það verða erfið…Lesa meira

true

Vesturland á mikið inni og þar er gott að búa

Guðrún Björg Bragadóttir ferðaþjónustubóndi í Hörðudal tekin tali Laugardalur í allri sinni dýrð er verkefni sem hlaut atvinnu- og nýsköpunarstyrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands nýverið. Það er á vegum hjónanna Guðrúnar Bjargar Bragadóttur matreiðslumanns og Guðlaugs S. Sigurgeirssonar húsasmiðs sem hafa á undanförnum árum verið að byggja upp ferðaþjónustu í Dölum, á jörð sinni Tungu í…Lesa meira