
Hvalur flensaður á plani Hvalstöðvarinnar. Ljósm. úr safni/ mm
Hvalur sækir um endurnýjun leyfis
Hvalur hf. hefur óskað eftir því við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun. Minnt er á að með vísan til nýlegs álits umboðsmanns Alþingis er samkvæmt stjórnarskrá öllum frjálst að stunda þá atvinnugrein sem þeir kjósa og verði það frelsi aðeins skert með lögum frá Alþingi. Í erindi Hvals er bent á að fyrirtækið hefur þróað betrumbætur á veiðibúnaði og veiðiaðferðum, á grundvelli tækninýjunga og framfara á því sviði. Þess er vænst að afgreiðslu leyfisins verði hraðað.