Fréttir

true

Dalabyggð gerir samning við Ólaf pá

Á sveitarstjórnarfundi Dalabyggðar þann 18. janúar var samþykktur samningur við Ungmennafélagið Ólaf pá um afnot elli- og örorkulífeyrisþega af líkamsræktarstöð félagsins að Vesturbraut 8 í Búðardal. Regluleg hreyfing er nauðsynleg fyrir andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Rannsóknir sýna að reglubundin líkamsrækt við hæfi styður við aukna virkni og árangur í endurhæfingu. Þá er líkamsþjálfun…Lesa meira

true

Eitt ár frá fyrsta ljósmyndafundi á Höfða

Ljósmyndasafn Akraness heldur vikulega ljósmyndafundi á Dvalarheimilinu Höfða og núna í janúar er ár síðan fyrsti fundurinn var haldinn. Fundirnir eru haldnir einu sinni í viku af Héraðsskjalaverði Akraneskaupstaðar, Erlu Dís Sigurjónsdóttur, í samvinnu við starfsfólk í dagdvöl. Á fundina mæta íbúar Höfða, fólk í dagdvöl, gestir og starfsfólk. Á hverjum fundi eru sýndar ljósmyndir…Lesa meira

true

Leggja til friðlýsingu Borgarneskirkju

Minjastofnun hefur ákveðið að leggja til við umhverfisráðherra að Borgarneskirkja verði friðlýst. Tillagan var lögð fyrir fund Húsafriðunarnefndar í desember og samþykkt þar. Vísað er til lagagreinar um menningarminjar sem segir að friðlýsa megi hús og mannvirki eða hluta þeirra, ef þau hafa menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Borgarneskirkja var hönnuð og byggð á árunum…Lesa meira

true

Aldrei fleiri látist í umferðinni

Aldrei hafa jafn margir látist í umferðarslysum á einum mánuði og nú í nýliðnum janúar. Hjón létust í umferðarslysi á Grindavíkurvegi 5. janúar. Tveir erlendir ferðamenn létust í umferðarslysi á þjóðveginum við Skaftafell 12. janúar. Einn lést í slysi á Vesturlandsvegi, skammt frá gatnamótum við Hvalfjarðarveg, 17. janúar. Einn lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við…Lesa meira

true

Vegagerðin bendir á hláku í dag og sviptingar í fyrramálið

Smám saman hlýnar í veðri í dag með tilheyrandi leysingum. Vegagerðin bendir á að við þær aðstæður verður flughált á sumum vegum, ekkí síst á Suður- og Vesturlandi. „Sviptingar eru í veðrinu og í fyrramálið má gera ráð fyrir hvassri suðvestan átt og hríðarveðri á fjallvegum eins og Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Öxnadalsheiði. Stendur fram á…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness í kvöld

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerða verður heitavatnslaust á hluta gamla bæjarins á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 1. febrúar frá klukkan 18 til 20. Svæðið sem um ræðir er: Skólabraut 16-30 og 17-37, Kirkjubraut 1-25 og 2-32, Melteigur 4-18 og 21, Suðurgata 47A-71, Laugarbraut 3-27 og 6-20, Víðigerði 2 og 1-3, Heiðargerði…Lesa meira

true

Vígja í dag nýtt hús fyrir félagsstarf eldri borgara

Í dag klukkan 16 verður nýtt hús Félags eldri borgara í Snæfellsbæ formlega opnað og því gefið nafn. Húsið er við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík en það var reist úr húseiningum sem sveitarfélagið keypti notaðar. „Óhætt er að segja að húsið sé hið glæsilegasta og getur Félag eldri borgara nú haft alla sína blómlegu starfsemi…Lesa meira

true

Lögreglan minnir á mikilvægi endurskinsmerkja

Lögreglan á Vesturlandi minnir á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. „Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Eva Björg hlaut Blóðdropann fyrir nýjustu bók sína

Í gær voru íslensku bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Við sama tækifæri voru Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropinn afhent. Það var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem afhenti verðlaunin.  Í flokki skáldverka hlaut Steinunn Sigurðardóttir verðlaunin fyrir bók sína Ból. Útgefandi er Mál og menning. Í flokki barna- og ungmennabóka hlutu Gunnar Helgason og Rán…Lesa meira