Eva Björg Ægisdóttir með verðlaun sín. Ljósm. aðsend

Eva Björg hlaut Blóðdropann fyrir nýjustu bók sína

Í gær voru íslensku bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Við sama tækifæri voru Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropinn afhent. Það var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem afhenti verðlaunin.  Í flokki skáldverka hlaut Steinunn Sigurðardóttir verðlaunin fyrir bók sína Ból. Útgefandi er Mál og menning. Í flokki barna- og ungmennabóka hlutu Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndahöfundur verðlaun fyrir bókina Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa. Útgefandi er Mál og menning. Í flokki fræðibóka og rita almenns efnis hlaut Haraldur Sigurðsson verðlaun fyrir bók sína Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi. Útgefandi er Sögufélag.

Eva Björg hlaut Blóðdropann fyrir nýjustu bók sína - Skessuhorn