
Skeifudagurinn var að venju haldinn á Mið-Fossum í Andakíl í gær, á sumardaginn fyrsta. Dagurinn hófst á fánareið og ávarpi Helga Eyleifs Þorvaldssonar brautarstjóra. Nemendur í hestafræði sýndu munstursreið áður en nemendur í búfræði sýndu afraksturs vetrarins með tamningatrippi sín undir lýsingu reiðkennara þeirra; Guðbjartar Þórs Stefánssonar frá Skipanesi. Þá komu mæðgurnar Guðrún og Þórdís…Lesa meira








