Fréttir

true

Ljótu hálfvitarnir með útgáfutónleika í Akranesvita í kvöld

Síðustu vikur hefur norðlenska hljómsveitin Ljótu hálfvitarnir staðið í ströngu við upptökur á nýjustu plötu sveitarinnar sem nefnist Brennið þið vitar. Nú telja og vita Ljótu hálfvitarnir að þeir hafi nægilegt loft í belgnum til að svífa í sjálft höfuðvígi sjálfsöryggisins. Þess vegna hafa þeir ákveðið að halda útgáfutónleika í Akranesvita til að fagna þessum…Lesa meira

true

Dósamóttaka Öldunnar hættir og greiðir tvöfalt fyrir dósir í dag

Á fundi byggðarráðs nýverið var tekin sú ákvörðun að hætta starfsemi dósamóttöku nú um mánaðamótin í húsnæði Öldunnar við Sólbakka 4 í Borgarnesi. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Í fundargerðinni segir: „Starfsfólk Öldunnar starfar nú jafnframt hjá fyrirtækjum og stofnunum víða í sveitarfélaginu. Það heyrir til undantekninga á landsvísu…Lesa meira

true

Ýmsar götur á Akranesi fá ný nöfn

Nú í vikunni hófst átak á Akranesi við merkingar á götum. Þá verður ýmsum götum, sem ekki hétu neitt áður, gefin nöfn og þær merktar. Nokkrar götur verða auk þess endurskírðar. Eitt af síðustu verkum Sævars Freys Þráinssonar fráfarandi bæjarstjóra í embætti var að hrinda verkefninu í gang. Nú hefur áður ónefnd tengigata, sem liggur…Lesa meira

true

Árekstur við Hvalfjarðarveg

Um klukkan 15:45 í dag varð árekstur á Vesturlandsvegi við vegamótin að Hvalfjarðarvegi. Talsverður viðbúnaður var vegna óhappsins; lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll frá slökkviðinu. Töluvert löng bílaröð myndaðist á þjóðveginum, en aðgerðum á vettvangi er að ljúka og samkvæmt upplýsingum frá vegfaranda hefur umferð verið hleypt á að nýju. Ekki liggur fyrir hversu alvarleg slys…Lesa meira

true

Frumkvæðisathugun gerð á gæðum barnaverndarþjónustu

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lögð fram og birt tilkynning sem borist hafði frá Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála. „Í ljósi þess að stofnuninni hefur borist fjöldi erinda er snúa að gæðum barnaverndarþjónustu Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar, sem þjónustuveitanda, bæði kvartanir frá notendum þjónustunnar auk ábendinga um ágalla á gæðum þjónustunnar, hefur stofnunin ákveðið að…Lesa meira

true

Samið um framhald á starfi Breiðar þróunarfélags

Brim hf. og Akraneskaupstaður hafa skrifað undir samning um framhald á starfsemi Breiðar þróunarfélags til næstu þriggja og hálfs ára, eða til loka árs 2026. „Breið þróunarfélag var stofnað í júlí 2020 og eru aðilar sammála um að verulegur og jákvæður árangur hafi verið af samstarfinu frá stofnun þess. Þann árangur má m.a. sjá í…Lesa meira

true

Lionsklúbburinn Eðna færði Höfða gjöf

Félagar í Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi færðu Höfða; hjúkrunar- og dvalarheimili svokallað Power Medic Lazer tæki að gjöf seinni partinn í gær og fór afhendingin fram í sjúkraþjálfun Höfða sem nefnist Hamar. Tækið kostar um hálfa milljón króna og er góð viðbót í tækjakost sjúkraþjálfunarinnar. Í ávarpi Kristrúnar Líndal Gísladóttur frá Eðnu kom fram að…Lesa meira

true

Útgáfu Fréttablaðsins hætt og sömuleiðis útsendingum Hringbrautar

Útgáfufélagið Torg hefur ákveðið að hætta útgáfu Fréttablaðsins og sömuleiðis að hætta útsendingum sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá útgáfufélaginu Torgi á vef Fréttablaðsins. Áfram mun Fjölmiðlatorg ehf. halda úti dv.is og hringbraut.is sem og Iceland Magazine. „Ástæður þess að rekstur Fréttablaðsins gengur ekki upp eru margvíslegar,“ segir í tilkynningu Torgs. „Að hluta…Lesa meira

true

Undið verður ofan af biðlistum eftir liðskiptaaðgerðum

Samningar milli Sjúkratrygginga Íslands, Klíníkurinnar í Ármúla og Handlæknastöðvarinnar í Glæsibæ um framkvæmd 700 liðskiptaaðgerða á þessu ári voru undirritaðir í gær og staðfestir af heilbrigðisráðherra. „Með þessu nýtist betur afkastageta heilbrigðiskerfisins sem leiðir til styttri biðtíma sjúklinga eftir þessari mikilvægu þjónustu. Sjúklingum sem fá þjónustu á grundvelli samninganna er tryggð greiðsluþátttaka í samræmi við…Lesa meira

true

Fjögur sveitarfélög á Vesturlandi mótmæla breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs

Í gær rann út frestur til að senda inn umsögn í Samráðsgátt stjórnvalda um gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Markmiðið með endurskoðun laga um Jöfnunarsjóð eru sögð þau að bæta gæði jöfnunar, einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og að Jöfnunarsjóður fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar. Miðað við umsagnir nokkurra sveitarfélaga af Vesturlandi er ekki verið að…Lesa meira