Fréttir

true

Hækkandi verð fyrir grásleppuna í upphafi vertíðar

Jákvæð þróun er nú í upphafi grásleppuvertíðar fyrir afurðina á fiskmörkuðum. Á fyrstu sjö dögum yfirstandandi vertíðar, dagana 21. – 27. mars, höfðu 41,4 tonn verið seld á fiskmörkuðum af bátum sem hafa leyfi til grásleppuveiða. Meðalverð er nú 419 kr/kg. Það er 167 krónum hærra verð en í upphafi vertíðarinnar á síðasta ári. Á…Lesa meira

true

Ný þjóðgarðsmiðstöð vígð á Hellissandi – MYNDASYRPA

Mikið var um dýrðir á Hellissandi síðastliðinn föstudag þegar nýtt hús þjóðgarðsmiðstöðvar Snæfellsjökuls var tekið í notkun. Gestum þjóðgarðsins hefur fjölgað ört undanfarin ár en um hálf milljón gesta heimsækja þjóðgarðinn á hverju ári. Mikil uppbygging hefur átt sér stað innan þjóðgarðsins á undanförnum árum en gestastofa hefur verið á Malarrifi síðastliðin 10 ár og…Lesa meira

true

Strandveiðikvótanum verður svæðaskipt að nýju

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingu á lögum um strandveiðar. Þar er lagt til að tekin verði upp að nýju svæðaskipting aflaheimilda við strandveiðar sem afnumin var fyrir fjórum árum. Fram hefur komið að ánægja með það fyrirkomulag sem verið hefur undanfarin þrjú ár var mest á Vesturlandi og Vestfjörðum,…Lesa meira

true

Ekkert annað í boði en – „Upp og út“

Laust eftir klukkan 18 fimmtudaginn 27. október var tilkynnt um árekstur tveggja bíla í Skolladal í Hálsasveit, á þjóðveginum skammt ofan við Hraunfossa. Í öðrum bílnum var Vignir Maríasson, þriggja barna faðir, afi, eiginmaður og formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga. Í slysinu klipptist vinstri hendi Vignis af rétt neðan við öxl, níu rifbein brotnuðu, gat kom á…Lesa meira

true

Hvalfjarðarsveit verður Barnvænt sveitarfélag

Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar undirritaði í dag fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar samstarfssamning við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið um að hefja innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi Hvalfjarðarsveitar. Sveitarfélög sem innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög en innleiðingarferli sáttmálans tekur að minnsta kosti tvö ár og skiptist í átta skref…Lesa meira

true

Um fimmtungur íbúða í Stykkishólmi eru orlofshús

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og varaþingmaður Vinstri grænna í norðausturkjördæmi, óskaði nýverið eftir yfirliti frá Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra um íbúðarhúsnæði í þéttbýli sem nýtt er sem orlofshúsnæði og er þar af leiðandi ekki virkt á íbúðamarkaði. Í svari ráðherra kemur fram sundurliðun eftir sveitarfélögum í landinu. Forsendur í meðfylgjandi töflu eru…Lesa meira

true

Hannes víkur úr sæti formanns en verður áfram framkvæmdastjóri KKÍ

Á þingi Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) um liðna helgi var samþykkt breyting á lögum um skipulag stjórnar KKÍ og aðskilnað starfa formanns og framkvæmdastjóra sambandsins. Í breyttum lögum er tilgreint að stjórn KKÍ skuli ráða framkvæmdastjóra en jafnframt tekið fram að framkvæmdastjóri megi ekki sitja í stjórn sambandsins. Í ljósi lagabreytingarinnar hefur Hannes S. Jónsson, formaður…Lesa meira

true

Snæfell jafnaði metin á móti Þór Akureyri

Snæfell og Þór Akureyri mættust í öðrum leik liðanna í undanúrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Stykkishólmi. Mikil stemning var í húsinu, umgjörðin til fyrirmyndar og ljóst að Snæfell þyrfti að ná sigri til að lenda ekki upp við vegg fyrir næsta leik í einvíginu. Fyrsti leikhlutinn einkenndist af…Lesa meira

true

Microsoft semur við Running Tide um kolefnisbindingu

Tæknirisinn Microsoft hefur gert samning við Running Tide um kolefnisbindingu og hafrannsóknir, en samningurinn snýr meðal annars að starfsemi Running Tide á Íslandi. Fyrirtækið stundar m.a. rannsóknir á þara og bindingu kolefnis á Akranesi en mun gera út með starfsemi sína frá Grundartanga. Þetta er fyrsti samningurinn sem Microsoft gerir við fyrirtæki í sjávartengdri kolefnisbindingu.…Lesa meira

true

Gróðureldur við Eldborg – Erfitt aðgengi og þyrluleysi torveldaði slökkvistarf

Um miðjan dag í gær kviknaði gróðureldur í kjarrivöxnu hrauni og mosa sunnan við Eldborg í Hnappadal. Vindur var norðanstæður, fremur kalt var í veðri og jarðvegur þurr. Talsverður viðbúnaður var enda ljóst að ekki er akvegur að þeim stað sem logaði og því þurftu slökkviliðsmenn og björgunarsveitir að komast síðasta spölinn fótgangandi. Hægt var…Lesa meira