Svipmynd frá Stykkishólmi þar sem fimmta hvert íbúðarhúsnæði er orlofseign eða í eigu lögaðila. Ljósm. úr safni.

Um fimmtungur íbúða í Stykkishólmi eru orlofshús

Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri og varaþingmaður Vinstri grænna í norðausturkjördæmi, óskaði nýverið eftir yfirliti frá Sigurði Inga Jóhannssyni innviðaráðherra um íbúðarhúsnæði í þéttbýli sem nýtt er sem orlofshúsnæði og er þar af leiðandi ekki virkt á íbúðamarkaði. Í svari ráðherra kemur fram sundurliðun eftir sveitarfélögum í landinu. Forsendur í meðfylgjandi töflu eru fullbúnar íbúðir í þéttbýli þar sem eigandi er annars vegar einstaklingur með annað lögheimili eða að eigandi er lögaðili og hvorki þinglýstur leigusamningur á fasteigninni né greiddar húsnæðisbætur vegna hennar. Gerður er sá fyrirvari að talsvert algengt er að hvorki þinglýstur leigusamningur sé til staðar né greiddar húsnæðisbætur í eigu leigufélaga þó húsnæðið sé í útleigu.

Um fimmtungur íbúða í Stykkishólmi eru orlofshús - Skessuhorn