
Ekkert annað í boði en – „Upp og út“
Laust eftir klukkan 18 fimmtudaginn 27. október var tilkynnt um árekstur tveggja bíla í Skolladal í Hálsasveit, á þjóðveginum skammt ofan við Hraunfossa. Í öðrum bílnum var Vignir Maríasson, þriggja barna faðir, afi, eiginmaður og formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga. Í slysinu klipptist vinstri hendi Vignis af rétt neðan við öxl, níu rifbein brotnuðu, gat kom á annað lungað og fékk hann vægan heilahristing. Um tíma var tvísýnt hvort hann myndi lifa slysið af en eftir rúmlega sólarhringsdvöl á gjörgæslu var ljóst að svo yrði. Við tóku 57 dagar á Landspítalanum í Fossvogi, þrjár skurðaðgerðir, sýklalyfjameðferðir og tveggja og hálfs mánaða endurhæfing á Grensás þaðan sem hann mun útskrifast nú í lok mánaðar. Endurhæfingin er þó ævilöng, segir Vignir, en þau hjónin segja já við lífinu og með húmorinn í fararbroddi eru þeim allir vegir færir. Og það á eftir að sýna sig hér á eftir að þessu fólki finnst gaman að hlæja og brosa.