Fjórir umhverfisráðherrar. Guðlaugur Þór Þórðarson, núverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, klippir á borða við opnun þjóðgarðsmiðstöðvarinnar ásamt þremur fyrrverandi umhverfisráðherrum; þeim Sigrúnu Magnúsdóttur, Sigríði Önnu Þórðardóttur og Guðmundi Inga Guðbrandssyni. Ljósm. af

Ný þjóðgarðsmiðstöð vígð á Hellissandi – MYNDASYRPA

Mikið var um dýrðir á Hellissandi síðastliðinn föstudag þegar nýtt hús þjóðgarðsmiðstöðvar Snæfellsjökuls var tekið í notkun. Gestum þjóðgarðsins hefur fjölgað ört undanfarin ár en um hálf milljón gesta heimsækja þjóðgarðinn á hverju ári. Mikil uppbygging hefur átt sér stað innan þjóðgarðsins á undanförnum árum en gestastofa hefur verið á Malarrifi síðastliðin 10 ár og mun starf hennar haldast óbreytt. Bygging nýju þjóðgarðsmiðstöðvarinnar hefur verið í kortunum síðan árið 2001, eða um það bil frá því að þjóðgarðurinn var stofnaður, og átti upphaflega að rísa árið 2007. Vegna efnahagsástands var ekki unnt að fjármagna bygginguna á þeim tíma.

Ný þjóðgarðsmiðstöð vígð á Hellissandi - MYNDASYRPA - Skessuhorn