
Hvalfjarðarsveit verður Barnvænt sveitarfélag
Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar undirritaði í dag fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar samstarfssamning við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið um að hefja innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla stjórnsýslu og starfsemi Hvalfjarðarsveitar. Sveitarfélög sem innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög en innleiðingarferli sáttmálans tekur að minnsta kosti tvö ár og skiptist í átta skref sem sveitarfélag þarf að stíga, með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Að tveimur árum liðnum getur Hvalfjarðarsveit því sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi. Viðurkenningin gildir í þrjú ár en til að viðhalda henni þarf sveitarfélag að halda innleiðingunni áfram og setja sér ný markmið.