
Gróðureldur við Eldborg – Erfitt aðgengi og þyrluleysi torveldaði slökkvistarf
Um miðjan dag í gær kviknaði gróðureldur í kjarrivöxnu hrauni og mosa sunnan við Eldborg í Hnappadal. Vindur var norðanstæður, fremur kalt var í veðri og jarðvegur þurr. Talsverður viðbúnaður var enda ljóst að ekki er akvegur að þeim stað sem logaði og því þurftu slökkviliðsmenn og björgunarsveitir að komast síðasta spölinn fótgangandi. Hægt var að aka fjór- eða sexhjólum áleiðis, en girðingar eru á gönguleiðinni og á þremur stöðum á stígnum er óökufært. Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar með slökkviskjólu, en í ljós kom að engin þyrla var tiltæk allan daginn þar sem engin áhöfn var á vakt. Ekki var því hægt að bregðast við útkallsbeiðninni. Jafnvel þótt hægt hafi verið að manna þyrluna er bilaður krókur sem slökkviskjóla er hengd í undir henni.