
Síðan árið 2010 hefur Þorleifur Geirsson tekið ljósmyndir á ferðum sínum um heimabæ sinn Borgarnes. Mynd dagsins setur hann síðan á heimasíðuna sína „Borgarnes Today.“ Myndirnar eru frá öllum dögum ársins, teknar jafnt í góðu sem slæmu veðri og sýna þar af leiðandi jafnt mannlíf, byggingar og það sem fyrir linsu ljósmyndarans ber hverju sinni.…Lesa meira








