Fréttir

true

,,Ég ætlaði að verða bestur í heimi“

Jón Theodór Jónsson er framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Skallagríms Jón Theodór Jónsson býr á Hvanneyri ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Jónsdóttur, og börnum þeirra þremur; Sigrúnu Öldu, Elínu Hörpu og Aroni Huga. Þangað fluttu þau frá Reykjavík fyrir nokkrum árum, án þess að eiga nokkra tengingu á svæðið. Jón sinnir í dag starfi framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Skallagríms en hann…Lesa meira

true

Fyrsta barnið í blaðinu – á nú sjálf von á barni

Skessuhorn hefur nánast frá upphafi birt myndir af nýburum á Vesturlandi í samvinnu við foreldra þeirra. Miðvikudaginn 8. apríl árið 1998 birtist fyrsta myndin og var hún af Ingu Jónu Guðlaugsdóttur og nýfæddri dóttur sem hún hafði eignast 30. mars það ár. Faðirinn var Jón Einarsson og bæði bjuggu þau í Rifi á Snæfellsnesi og…Lesa meira

true

Fyrstu skrefin á Skessuhorni – Í hverri viku er sagan rituð

Á síðustu 25 árum hafa á annað hundrað manns starfað á Skessuhorni, þar af um hundrað blaðamenn í skemmri eða lengri tíma. Margir hafa um leið verið að taka sín fyrstu skref í blaðamennsku, sumir haldið áfram á þeirri braut, en aðrir söðlað um og farið í önnur verk. Þó virðist sammerkt með þeim að…Lesa meira

true

„Hefur gengið framar okkar björtustu vonum“

Rætt við Díönu Bergsdóttur í Dansstúdíói Díönu á Akranesi Skagakonan Díana Bergsdóttir opnaði Dansstúdíó Díönu 8. janúar á síðasta ári og fagnaði á dögunum eins árs afmæli. Hún lærði í Listdansskóla Íslands, er með þjálfararéttindi og hefur verið að kenna fimleika og dans í fimleikum. Díana kom við á Skessuhorni í síðustu viku og settist…Lesa meira

true

Hrútarnir skiluðu sér um síðir

Vignir Smári Valbergsson er ungur smiður og búfræðingur. Honum mætti lýsa sem mjög metnaðarfullum sauðfjárræktanda, því hann leggur ýmislegt á sig til að fá sem mest og best út úr sínu fé. Vignir býr á Stóra Vatnshorni í Haukadal í Dölum, ásamt foreldrum og yngri bróður. Hann fylgist grannt með kynbótamálum og getur til að…Lesa meira

true

Fulltrúar úr bæjarstjórn komu með köku og blóm

Góðir gestir mættu á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns í morgun. Þar voru á ferðinni nokkrir bæjarfulltrúar á Akranesi, ásamt bæjarstjóra og yfirmanni skipulagssviðs. Færðu þeir starfsfólki blóm og köku í tilefni 25 ára afmælis Skessuhorns sem er á morgun. Sest var að snæðingi og rædd málefni líðandi stundar. Starfsfólk Skessuhorns þakkar góðum gestum fyrir komuna og hlýlegheitin.…Lesa meira

true

Þjóðfundur framundan um framtíð skólaþjónustu

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur boðað til þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu á Íslandi. Verður hann haldinn í Hörpu mánudaginn 6. mars kl. 9:00–16:00. Fundurinn verður jafnframt í streymi en nauðsynlegt að skrá sig á hann. Aðgangur er ókeypis. Boð var sent til hagsmunaaðila í síðustu viku og hafa þegar yfir 350 skráð sig…Lesa meira

true

KB mótaröðin hefst á morgun

Fyrsta mótið í KB mótaröðinni verður haldið á morgun, laugardaginn 18. febrúar. Keppt verður í fjórgangi í Faxaborg, reiðhöllinni í Borgarnesi. Keppnisflokkar eru barnaflokkur, unglingaflokkur, ungmennaflokkur, 2. flokkur, 1. flokkur og pollaflokkur. Mótið hefst klukkan 12 á barnaflokki en ráslista má finna á appinu Kappi. Nemendur úr MB munu sjá um kaffisölu en frítt er…Lesa meira

true

Byrjaði að spila með meistaraflokki í tíunda bekk

Tinna Guðrún Alexandersdóttir er landsliðskona í körfubolta Tinna Guðrún Alexandersdóttir hóf að spila með íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta í lok síðasta árs, einungis 19 ára gömul. Hún ólst upp í Stykkishólmi en haustið 2021 flutti hún til Reykjavíkur til að freista þess að leggja körfuboltann fyrir sig og kláraði hún þess vegna síðasta árið sitt…Lesa meira