
Þjóðfundur framundan um framtíð skólaþjónustu
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur boðað til þjóðfundar um framtíð skólaþjónustu á Íslandi. Verður hann haldinn í Hörpu mánudaginn 6. mars kl. 9:00–16:00. Fundurinn verður jafnframt í streymi en nauðsynlegt að skrá sig á hann. Aðgangur er ókeypis. Boð var sent til hagsmunaaðila í síðustu viku og hafa þegar yfir 350 skráð sig til þátttöku í Hörpu. Opið er fyrir skráningar til og með 26. febrúar nk.