Hrútarnir og Vignir slaka á saman.

Hrútarnir skiluðu sér um síðir

Vignir Smári Valbergsson er ungur smiður og búfræðingur. Honum mætti lýsa sem mjög metnaðarfullum sauðfjárræktanda, því hann leggur ýmislegt á sig til að fá sem mest og best út úr sínu fé. Vignir býr á Stóra Vatnshorni í Haukadal í Dölum, ásamt foreldrum og yngri bróður. Hann fylgist grannt með kynbótamálum og getur til að mynda rifjað upp í huganum stigun og aldur ýmissa góðra hrúta, burtséð frá því hvort hann á þá sjálfur eða ekki.

Hrútarnir skiluðu sér um síðir - Skessuhorn