Fréttir

true

Heimilt að veiða 901 hreindýr í ár

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið 2023 og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Alls verður heimilt að veiða 901 hreindýr á veiðitímanum, 475 kýr og 426 tarfa. Þetta er 120 hreindýrum færra en á undanförnu ári. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september og…Lesa meira

true

Óskað eftir tilnefningum til Landbúnaðarverðlauna

Úthlutunarnefnd á vegum matvælaráðuneytisins óskar nú eftir tilnefningum fyrir landbúnaðarverðlaun ráðuneytisins en þau eru veitt árlega í tengslum við Búnaðarþing. Óskað er eftir tilnefningum um bændabýli og landbúnaðarfyrirtæki eða félög sem talin eru hafa verið á einhvern hátt til fyrirmyndar í íslenskum landbúnaði á nýliðnu ári. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að stutt greinargerð…Lesa meira

true

Níu manna hópur Landsbjargar að störfum í Tyrklandi

Níu manna hópur á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar flaug til Tyrklands seinni part þriðjudags til að veita aðstoð vegna jarðskjálftanna sem riðu þar yfir á mánudag. Hópurinn sem samanstendur af sérfræðingum í aðgerðastjórnun og samhæfingu aðgerða hefur nú komið sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er, eftir…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður kaupir Akrakotsland

Búið er að undirrita samning um kaup Akraneskaupstaðar á 42 hektara óbyggðs lands Akrakots í Hvalfjarðarsveit. Landið sem um ræðir er suðaustan við mörk sveitarfélaganna. Kaupin voru undirrituð í framhaldi af bæjarstjórnarfundi á Akranesi fyrr í vikunni með samþykki allra bæjarfulltrúa. Viðstödd undirritunina voru systkinin frá Akrakoti sem seljendur, bæjarstjórn, bæjarstjóri, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs…Lesa meira

true

Yfir tvær milljónir söfnuðust fyrir Helgu Ingibjörgu – myndasyrpa

Rakarinn Gísli J. Guðmundsson á Akranesi setti af stað söfnun í vikunni þar sem markmiðið var að styðja við bakið á Skagakonunni Helgu Ingibjörgu Guðjónsdóttur en Helga er um þessar mundir í lyfjameðferð vegna krabbameins. Gísli gaf það út á FB síðu sinni í samvinnu með veitingastaðnum Gamla Kaupfélaginu að hann myndi láta raka af…Lesa meira

true

Snæfell með stórsigur á b liði Breiðabliks

Breiðablik b og Snæfell mættust í Smáranum í Kópavogi í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Breiðablik b var án stiga og hafði tapað öllum 15 leikjum sínum í deildinni á meðan Snæfell var í öðru til þriðja sæti ásamt Þór Akureyri með 24 stig. Það er skemmst frá því að segja að leikmenn…Lesa meira

true

Bridds verður valáfangi í tveimur framhaldsskólum á Vesturlandi

Í haust ákvað Bridgesamband Íslands að leita samstarfs við framhaldsskóla í landinu um kennslu í bridds. Viðtökur hafa verið góðar og nú þegar hafa sex skólar staðfest þátttöku og m.a. tveir framhaldsskólar á Vesturlandi. Boðið verður upp á bridgekennslu sem valáfanga í skólunum. Þetta eru Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði. Góðar…Lesa meira

true

Flosi hættir í vor sem aðstoðarskólastjóri í Grundaskóla

Flosi Einarsson mun í vor hætta sem aðstoðarskjólastjóri í Grundaskóla en því starfi hefur hann gegnt undanfarin sjö ár. Flosi segir í stuttu spjalli við Skessuhorn að ástæðan fyrir því sé mjög einföld. „Ég byrjaði að kenna 25 ára gamall, ég er orðinn 61 árs og ég er því fyrir nokkru síðan kominn á svokallaða…Lesa meira

true

Sjammi átti lægsta boð í C álmu Grundaskóla

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðastliðinn mánudag voru opnuð tilboð í framkvæmdir við C álmu, stækkun og endurbætur á Grundaskóla. Um mjög stórt verkefni er að ræða og því þurfti að bjóða það út á evrópska efnahagssvæðinu. Kostnaðaráætlun bæjaryfirvalda hljóðaði upp á rúmar 1.200 milljónir króna. Sjammi ehf. átti lægra tilboðið af tveimur og…Lesa meira

true

Vegfylling komin yfir Þorskafjörð

Um helgina náði vegfyllingin yfir Þorskafjörð í Austur-Barðastrandarsýslu að landi, vestanverðu við fjörðinn. Vegurinn kemur upp í fjöruna niður undan svonefndum Þórisstaðastapa, sem er nokkuð þekkt örnefni við núverandi veg. Fram kemur á vef Reykhólahrepps að þegar vegurinn var endurbyggður, fyrir rúmlega 35 árum, hafi staðið til að sprengja niður Stapann og nota efnið í…Lesa meira