Fréttir

true

Öskudagsbúningar fá nýtt líf

Næstu tvo laugardaga, 11. febrúar og 18. febrúar, verður boðið upp á þeirri nýjung á Bókasafni Akraness að hægt verður að koma með og ná í öskudagsbúninga og gefa þeim þar með nýtt líf. Opið er þessa daga á bókasafninu frá klukkan 11 til 14 og því upplagt að eiga möguleika á því að koma…Lesa meira

true

Hátt fiskverð en fáar veiðiferðir

Tíðar brælur hafa gert sjómennsku erfiða undanfarnar viku. Fyrir vikið er gríðarleg eftirspurn eftir fiski hjá fiskverkendum á landinu og þar að leiðandi hefur fengist mjög hátt fiskverð á mörkuðum. Góð aflabrögð hafa verið í öll veiðarfæri þegar gefið hefur á sjó. Örvar Marteinsson skipstjóri á línubátnum Sverri SH í Ólafsvík segir að hann hafi…Lesa meira

true

Háskóla- og vísindaráðherra starfaði á Bifröst

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var nýlega með farandskrifstofu sína á Vesturlandi. Háskólinn á Bifröst var á meðal viðkomustaða og fékk ráðherra rekstorsskrifstofu Margrétar Jónsdóttur Njarðvík til afnota. Segja má að ráðherra hafi verið mikill aufúsugestur hjá Háskólanum á Bifröst en Áslaug Arna er ekki einasta háskóla- og vísindaráðherra heldur er ráðuneyti hennar…Lesa meira

true

Útlit fyrir að hrogn verði ekki fryst á Akranesi

Framundan er loðnuvertíð, en Hafrannsóknastofnun lagði til í síðustu viku að kvótinn yrði aukinn um 57 þúsund tonn og verði 276 þúsund tonn. Þessi aukning gæti þýtt 4-5 milljarða í auknum útflutningstekjum. Í hlut Brims koma um 30 þúsund tonn, en þar af var veitt upp í hluta þess kvóta í desember og landað til…Lesa meira

true

Afmælisblað í fjöldreifingu í næstu viku

Laugardaginn 18. febrúar nk. verða rétt 25 ár síðan Skessuhorn kom fyrst út. Blaðið sem verður gefið út í næstu viku, miðvikudaginn 15. febrúar, verður að hluta helgað afmælinu og sögu fyrirtækisins. Þá verða samkvæmt venju fréttir og viðtöl víðs vegar af Vesturlandi. Þetta tölublað verður prentað í sérstöku auka upplagi, en auk hefðbundinnar dreifingar…Lesa meira

true

Innkalla sýklalyfið Staklox

„Einstaklingar sem eru í sýklalyfjameðferð með sýklalyfinu Staklox eru beðnir um að skila því í næsta apótek sem fyrst,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Þeim verður afhent annað lyf í staðinn að kostnaðarlausu svo þeir geti haldið sýklalyfjameðferð áfram og lokið henni. Þeir sem eiga afgangs birgðir af Staklox eru einnig beðnir um að skila…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Svana Hrönn Jóhannsdóttir

Féll fyrir glímunni Dalakonan Svana Hrönn Jóhannsdóttir hefur búið í Borgarnesi undanfarin ár ásamt eiginmanni sínum og dætrum þeirra tveimur. Þau fluttu frá Búðardal fljótlega eftir að Svana tók við starfi framkvæmdastjóra Glímusambands Íslands árið 2018. Svana ólst upp á bænum Hlíð í Hörðudal og gekk í Grunnskólann í Búðardal, sem þá var og hét.…Lesa meira

true

112 dagurinn er á morgun

Dagur neyðarnúmersins – 112 dagurinn – verður haldinn hátíðlegur á morgun, laugardaginn 11. febrúar. Þann dag verður Neyðarlínan ásamt helstu viðbragðsaðilum í landinu með viðburði í Hörpu en 112 dagurinn er samevrópskur dagur neyðarnúmersins. Yfirskrift dagsins að þessu sinni er „Hvað get ég gert?“. Auk Neyðarlínunnar taka lögreglan, slökkvilið, sjúkraflutningar, Rauði krossinn, Slysavarnarfélagið Landsbjörg o.fl.,…Lesa meira

true

Póstboxum fjölgað á Snæfellsnesi

Miklar breytingar hafa orðið á póstþjónustu á síðari árum. Fjöldi bréfasendinga hefur dregist saman en á sama tíma hafa pakkasendingar margfaldast. Póstboxum hefur fjölgað um allt land og Snæfellsnesið er engin undantekning. Nú hafa verið tekin í notkun ný póstbox í Ólafsvík og á Hellissandi og bætast þau við póstboxin sem fyrir eru í Stykkishólmi…Lesa meira

true

Kaka ársins er komin í sölu

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, tók á móti fyrstu Köku ársins 2023 í dag. Landssamband bakarameistara efndi venju samkvæmt til árlegrar keppni um Köku ársins og var sigurvegarinn að þessu sinni Guðrún Erla Guðjónsdóttir í Mosfellsbakaríi. Kaka ársins er með Doré karamellu-mousse með passion-kremi og heslihnetumarengsbotni. Sala á kökunni hófst í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara um allt…Lesa meira