
Símon Bergsson Hjaltalín stöðvarstjóri við póstboxin í Stykkishólmi.
Póstboxum fjölgað á Snæfellsnesi
Miklar breytingar hafa orðið á póstþjónustu á síðari árum. Fjöldi bréfasendinga hefur dregist saman en á sama tíma hafa pakkasendingar margfaldast. Póstboxum hefur fjölgað um allt land og Snæfellsnesið er engin undantekning. Nú hafa verið tekin í notkun ný póstbox í Ólafsvík og á Hellissandi og bætast þau við póstboxin sem fyrir eru í Stykkishólmi og Grundarfirði. „Pósturinn leggur mikla áherslu á að aðlagast hratt og örugglega breyttum veruleika og kappkostar að þróa þjónustu sína í takt við nýjar þarfir og kröfur neytenda. Fjölgun póstboxa er hluti af því ferli,“ segir Símon Bergsson Hjaltalín, stöðvarstjóri pósthússins í Stykkishólmi.