Fréttir

true

Ellefta stýrivaxtahækkunin í röð

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti í morgun ákvörðun sína um að hækka stýrivexti um 0,5 prósentustig og fara þeir nú úr 6,0 í 6,5%. Þetta er ellefta stýrivaxtahækkun stofnunarinnar í röð. Frá því í maí á síðasta ári hafa stýrivextir verið hækkaðir skarpt, en þá voru þeir 0,75%. Verðbólga mælist nú 9,9% og hefur farið hækkandi eftir…Lesa meira

true

Forsetinn þakkar fyrir skopmynd

Ritstjórn Skessuhorns barst í dag fallegt bréf stílað á Bessastöðum 1. febrúar sl. ásamt ljósmynd. Myndin er af Guðna Th Jóhannessyni forseta Íslands þar sem hann heldur á úrklippu úr Skessuhorni með skopmynd þar sem hann sjálfur kom við sögu. Skopmynd Bjarna Þórs birtist í blaðinu 25. janúar síðastliðinn. Nokkrum dögum áður hafði forsetinn verið…Lesa meira

true

Gekk úr þrjátíu stiga hita í tíu stiga frost á viku

Borgnesingurinn Jón Heiðarsson byrjaði að stunda skipulagðar göngur árið 2016. Í Covid faraldrinum óx áhuginn og fór hann að ganga á fjöll, hérlendis og erlendis. Hann er nú nýkominn heim frá Afríku þar sem hann gekk á hæsta fjall heimsálfunnar, Kilimanjaro. Fjallið er í Tansaníu en þess má geta að á því eru þrír eldgígar,…Lesa meira

true

Netin tekin upp og haldið til hafnar

Kap VE 4 kom til hafnar í Grundarfirði sunnudaginn 5. febrúar þar sem skipið átti að bíða þar til veðrið yrði bærilegra. Kap hefur verið við veiðar á Breiðafirði og hefur gengið vel að fiska. En þar sem veðurspáin var ekki góð næstu daga var ákveðið að taka upp öll net og halda til hafnar…Lesa meira

true

Einn öflugasti leitardróni landsins kominn á Akranes

Björgunarfélag Akraness, í samstarfi við Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar, festi seint á síðasta ári kaup á nýjum og öflugum leitardróna. Dróninn er af gerðinni DJI Matrice 300 RTK en DJI er stærsti drónaframleiðandi heims í dag. Dróninn þolir 20 gráðu frost, 20 metra á sekúndu vind og rigningu, eða ólíkt meira en hefðbundnir drónar þola.…Lesa meira

true

Afmælisblað í stóru upplagi í næstu viku

Laugardaginn 18. febrúar nk. verða rétt 25 ár síðan Skessuhorn kom fyrst út. Blaðið sem verður gefið út í næstu viku, miðvikudaginn 15. febrúar, verður að hluta helgað afmælinu og sögu fyrirtækisins. Þá verða samkvæmt venju fréttir og viðtöl víðsvegar af Vesturlandi. Þetta tölublað verður prentað í sérstöku auka upplagi, en auk hefðbundinnar dreifingar til…Lesa meira

true

Lífið er núna dagurinn á morgun, 9. febrúar

Nú stendur yfir fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja nýjar Lífið er núna húfur og vekja athygli á þeim áskorunum sem verða á vegi fyrir þau sem greinast með krabbamein sem og aðstandendum og hvernig Kraftur getur stutt við þau með…Lesa meira

true

Segir ömurlegt að þurfa að ströggla við að leita réttar síns

Í síðustu viku var í fréttaskýringaþættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu til umfjöllunar vandamál kaupenda gallaðra húseigna og glímu þeirra við að leita réttar síns gagnvart seljendum. Þegar kaupandi nýrrar húseignar kemst að raun um galla á hann samkvæmt lögum að geta leitað réttar síns og fengið gert við eða greiddar bætur sem viðgerðum nemur. Meðal þeirra…Lesa meira

true

Sigrún fórnar hárinu síðdegis á morgun safnist milljón

Síðdegis á morgun mun Sigrún Ríkharðsdóttir, gallhörð Skagakona, mæta í rakarastólinn hjá Gísla rakara við Stillholt á Akranesi. Hún mun verða krúnurökuð náist markmið um eina milljón í fjársöfnun til stuðnings Helgu Ingibjörgu Guðjónsdóttur sem glímir við krabbamein. Áður hafði Gísli rakari heitið á viðskiptavini og vini almennt að ef hann næði að safna 200…Lesa meira

true

Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar

Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra er þekkt fjölmiðla- og heimildarmyndagerðarkona og hefur starfað við frétta- og dagskrárgerð í um aldarfjórðung. Hún hefur unnið bæði í útvarpi og sjónvarpi, hjá Stöð 2 og RÚV, síðustu ár sem ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks. Þóra var einnig stundakennari við Háskóla Íslands um árabil…Lesa meira