Fréttir

Lífið er núna dagurinn á morgun, 9. febrúar

Nú stendur yfir fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja nýjar Lífið er núna húfur og vekja athygli á þeim áskorunum sem verða á vegi fyrir þau sem greinast með krabbamein sem og aðstandendum og hvernig Kraftur getur stutt við þau með hjálp almennings og fyrirtækja í landinu. Um 70 ungir einstaklingar greinast á ári hverju og hefur það bæði áhrif á þau greindu sem og fjölskyldur og ástvini þeirra. Átakið stendur til 20. febrúar.

Lífið er núna dagurinn á morgun, 9. febrúar - Skessuhorn