Helga Ingibjörg, Gísli og Sigrún. Ljósmyndir: vaks

Yfir tvær milljónir söfnuðust fyrir Helgu Ingibjörgu – myndasyrpa

Rakarinn Gísli J. Guðmundsson á Akranesi setti af stað söfnun í vikunni þar sem markmiðið var að styðja við bakið á Skagakonunni Helgu Ingibjörgu Guðjónsdóttur en Helga er um þessar mundir í lyfjameðferð vegna krabbameins. Gísli gaf það út á FB síðu sinni í samvinnu með veitingastaðnum Gamla Kaupfélaginu að hann myndi láta raka af sér hárið ef upphæðin færi yfir tvö hundruð þúsund krónur. Sigrún Ríkharðsdóttir bættist síðan fljótlega í hópinn og lofaði því að láta einnig snoðklippa sig ef næðist að safna yfir einni milljón króna.

Yfir tvær milljónir söfnuðust fyrir Helgu Ingibjörgu - myndasyrpa - Skessuhorn