
Ragna Sif Árnadóttir, læknir hópsins, er hér við fyrstu hjálpar aðstoð. Ljósm. Landsbjörg.
Níu manna hópur Landsbjargar að störfum í Tyrklandi
Níu manna hópur á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar flaug til Tyrklands seinni part þriðjudags til að veita aðstoð vegna jarðskjálftanna sem riðu þar yfir á mánudag. Hópurinn sem samanstendur af sérfræðingum í aðgerðastjórnun og samhæfingu aðgerða hefur nú komið sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er, eftir að hafa tjaldað búðum við Hatay Stadium í gær, 8. febrúar.