Fréttir

true

Reglugerð um atvinnusjúkdóma og rétt til bóta

Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra sem fjallar um bótaskylda atvinnusjúkdóma. Markmiðið er að tryggja þeim bætur sem eru slysatryggðir og greinast með atvinnusjúkdóm, óháð tekjum viðkomandi. Með reglugerðinni er fylgt eftir breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga nr. 45/2015 sem samþykktar voru á Alþingi í júní 2021. Með lagabreytingunni 2021…Lesa meira

true

Skagamenn áttu enga möguleika á móti Álftanesi

ÍA og Álftanes áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Skagamenn höfðu tapað síðustu fimm leikjum sínum í deildinni á meðan Álftanes hafði unnið síðustu þrjá og sat á toppi deildarinnar. ÍA byrjaði ágætlega í leiknum, komst í 8:2 en um miðjan fyrsta…Lesa meira

true

Blóðsöfnun í Borgarnesi á morgun

Bíll Blóðbanka Íslands verður við N1 í Borgarnesi á morgun, miðvikudaginn 1. febrúar, frá klukkan 10-17. Þangað eru allir hvattir til að mæta, sem mega gefa blóð. Athugið að upphaflega stóð til að bíllinn yrði í Borgarnesi í dag, þriðjudag, en því var breytt vegna veðurs.Lesa meira

true

Lilja Rannveig kjörin formaður framtíðarnefndar

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, þingmaður Framsóknar í Norðvesturkjördæmi, tók í síðustu viku við sæti formanns framtíðarnefndar Alþingis. Í framtíðarnefnd sitja þingmenn úr öllum þingflokkum og er hlutverk hennar að halda utan um framtíðartækifæri Íslands á ýmsum sviðum. ,,Nefndin skal m.a. fjalla um áskoranir og tækifæri Íslands í framtíðinni að því er snertir tæknibreytingar, langtímabreytingar á umgengni…Lesa meira

true

Kristín sigraði með yfirburðum á RIG 2023

Um helgina fóru fram Reykjavíkurleikarnir (RIG) í kraftlyftingum. Þar varð Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir í efsta sæti. Hún lauk keppni með 565 kg í samanlögðu, 107 stigum og sigri hvort sem litið var til kvennaflokksins eins eða allra keppenda. Kristín sigraði með yfirburðum í kvennaflokki en í næstu sætum urðu þær Arna Ösp Gunnarsdóttir, Íris Rut…Lesa meira

true

Búast má við slæmu veðri í kvöld og nótt

Gular og appelsínugular viðvaranir eru nú í gildi fyrir landið næsta sólarhring eða svo. Nú fer að auka austan vind og um tíma má búast við glórulausum byl og stórhríð. Þá er ekkert ferðaveður. Faxaflói: Við Faxaflóa verður frá því klukkan 18 í dag austan 15-20 m/s og snarpar vindhviður. Víða snjókoma með lélegu skyggni.…Lesa meira

true

Snæfell EA 310 gerði stutt stopp

Frystitogarinn Snæfell EA 310 kom til hafnar í Grundarfirði í dag til að skipta um áhafnarmeðlim. Varla tók því að binda skipið því það var ekki fyrr búið að festa spottana að þeir voru leystir aftur og skipið hélt aftur út á miðin. Gamla Guggan er eins og sjá má ekki lengur gul eins og…Lesa meira

true

Siggi Tomm Íslandsmeistari öldunga í pílu

Um helgina fór fram Íslandsmót öldunga í pílukasti í Pílusetrinu að Tangarhöfða í Reykjavík og voru alls 30 keppendur skráðir til leiks. Skagamaðurinn Sigurður Tómasson frá Pílufélagi Akraness var sigurvegari í karlaflokki og er því Íslandsmeistari í öldungaflokki í pílu árið 2023. Fram kemur á vef Pílusambands Íslands að Siggi Tomm hafi átt stórkostlegt mót…Lesa meira

true

Skallagrímur vann Selfoss í hörkuleik

Það er óhætt að segja að leikmenn Selfoss og Skallagríms hafi boðið upp á mikla spennu og dramatík í leik liðanna í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið en leikurinn fór fram í Vallaskóla á Selfossi. Skallagrímsmenn byrjuðu af miklum krafti í leiknum, skoruðu fyrstu sjö stig leiksins og heimamenn komust ekki á blað…Lesa meira

true

Rannsaka möguleika á endurheimt búsvæða fiska og fugla

Á dögunum hlaut Fuglavernd í samstarfi við Landgræðsluna, Hafrannsóknastofnun og Konunglega fuglaverndunarfélag Bretlands (RSBP) styrk til að kanna möguleika á endurheimt búsvæða í lækjum, vötnum og votlendi fyrir fiska, fugla og aðrar lífverur á Mýrum. Náttúrufræðistofnun Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands munu einnig koma að verkefninu. Á vef Fuglaverndar er greint frá því að verkefnið er…Lesa meira