Fréttir

true

Blóðsöfnun í Borgarnesi á miðvikudag – uppfærð frétt

Bíll Blóðbanka Íslands verður við N1 í Borgarnesi miðvikudaginn 1. febrúar frá klukkan 10-17. Þangað eru allir hvattir til að mæta, sem mega gefa blóð. Athugið að fréttin hefur verið uppfærð. Til stóð að bíllinn yrði í Borgarnesi á morgun, þriðjudag, en því var breytt vegna veðurspár.Lesa meira

true

Borgfirðingabók færð á timarit.is

Á haustdögum boðaði Sögufélag Borgarfjarðar til almenns fundar þar sem hresst var upp á stjórnkerfi félagsins og gengið þannig frá málum að fullskipað varð í stjórn og önnur embætti. Einnig var rætt um verkefni félagsins og hvort breyta ætti um áherslur á einhverjum sviðum. Fundarfólk var sammála um að halda sömu verkefnum gangandi og verið…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Mannamóti

Mannamót markaðsstofa landshlutanna eru góður vettvangur til að mynda tengsl, ræða við gesti og þá ekki síður samstarfsfólk í ferðaþjónustu. Jafnvel nágranna sem hafa sömu hagsmuni; að taka á móti gestum og veita sem besta þjónustu í heimabyggð. Síðast en ekki síst er Mannamót vettvangur til að stofna til viðskipta. Það var venju fremur góð…Lesa meira

true

Skírnir Ingi er íþróttamaður UMFR 2022

Framfaraverðlaun og kjör Íþróttamanns Ungmennafélags Reykdæla árið 2022 var kunngjört nú fyrir stundu. Verðlaun voru veitt fyrir þær íþróttagreinar sem hægt er að æfa hjá UMFR á meðal iðkenda 16 ára og yngri. Valið er samkvæmt tilnefningum þjálfara, sem skrifuðu meðfylgjandi texta. Íþróttmaður UMFR árið 2022 er Skírnir Ingi Hermannsson körfuknattleiksmaður úr Reykholti. Einnig voru…Lesa meira

true

Ekkert ferðaveður á mánudagskvöldi

Nú er spáð austan- og suðaustan hvelli á landinu og eru bæði gular og appelsínugular viðvaranir í gildi frá mánudegi og fram á þriðjudag. Veðrið verður verst á sunnan- og suðvestanverðu landinu eftir miðjan dag á morgun, mánudag, og til miðnættis. Við þessar aðstæður má búast við að vegir verði ófærir um tíma vegna ofankomu…Lesa meira

true

Skíðaráð hefur unnið þrekvirki í uppbyggingu á skíðasvæði Snæfellsness

Rætt við Rut Rúnarsdóttur, formann, og Guðmund Pálsson, meðlim Skíðaráðsins. Nánast í þéttbýlinu í Grundarfirði liggur skíðasvæði Snæfellsness, brekkan byrjar ofan við bæinn og endar neðan við grunnskólann. Sögu svæðisins má rekja aftur um nokkra áratugi en t.d. hefur núverandi skíðalyfta staðið síðan 1984. Skíðasvæðið er einnig talið vera það lægsta í heiminum en það…Lesa meira

true

Íslensku bókmenntaverðlaunin og blóðdropinn

Íslensku bókmenntaverðlaunin 2022 voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum 24. janúar síðastliðinn. Þau hlutu Pedro Gunnlaugur Garcia fyrir skáldverkið Lungu, Arndís Þórarinsdóttir fyrir barnabókina Kollhnís og Ragnar Stefánsson fyrir fræðibókina „Sá stóri; Hvenær kemur sá stóri? Að spá fyrir um jarðskjálfta“. Skúli Sigurðsson hlaut íslensku glæpsasagnaverðlaunin Blóðdropann 2022 fyrir bók sína Stóri bróðir. Þetta…Lesa meira

true

Naumt tap hjá Skagakonum í hörkuleik

Stelpurnar í meistaraflokki ÍA í knattspyrnu léku gegn liði Aftureldingar í Akraneshöllinni í gærkvöldi. Afturelding spilar í Lengjudeild á komandi keppnistímabili en ÍA í 2. deild. Leikurinn var nokkuð jafn en lauk með naumum sigri gestanna, 1-2. Fyrri hálfleikurinn var hraður og jafnvel nokkuð harður á köflum. ÍA liðið mætti vel stemmt til leiks og…Lesa meira

true

Arnar Már skipaður ferðamálastjóri

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra. Arnar Már hefur áratuga rekstrar- og stjórnunarreynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem leiðtogi markaðsmála hjá Icelandia. Hann er með meistaragráðu á sviði alþjóðamarkaðs- og ferðamálafræða frá Université de Savoie. Áður starfaði hann um árabil hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og…Lesa meira

true

Samþykktu nýjan deiliskipulagsramma fyrir Smiðjuvelli

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar sl. þriðjudag var tekinn til afgreiðslu og samþykktur með átta atkvæðum skipulagsrammi sem felur í sér breytingu á aðal- og deiliskipulagi á Smiðjuvöllum. Sú breyting er lögð til að lóðin Smiðjuvellir 32, verslunarmiðstöðin með Bónus og fleiri fyrirtækjum, verður hluti skipulagslýsingarinnar. Einkum snúa þó áætlaðar breytingar að áformum um breytingu á…Lesa meira