Fréttir

true

Tryggvi fór fram á niðurfellingu

Fram kemur á heimasíðu Reykhólahrepps að í Héraðsdómi Vesturlands síðasta fimmtudag hafi verið tekið fyrir mál Tryggva Harðarsonar fyrrverandi sveitarstjóra gegn Reykhólahreppi. Í fyrirtökunni fór Tryggvi fram á að málið yrði fellt niður og samþykkti sveitarfélagið þá beiðni. Rekstri málsins fyrir dómstólnum er því lokið. Tryggvi var ráðinn í starf sveitarstjóra haustið 2018 en var…Lesa meira

true

Þrjú sveitarfélög á Vesturlandi innleiða Borgað þegar hent er kerfi

Samband íslenskra sveitarfélaga hefur farið af stað með innleiðingarverkefni þar sem markmiðið er innleiðing á kerfi innheimtu vegna meðhöndlunar úrgangs sem nefnist „Borgað þegar hent er kerfi“. Verkefnið er leitt af Sambandi íslenskra sveitarfélaga en auk þess eru Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Húsnæðis og mannvirkjastofnun aðilar að því. Þetta kemur fram á heimasíðu Sambands…Lesa meira

true

Sveitarfélagið Stykkishólmur skal það heita

Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar kaus á fundi sínum í gær um nafn á nýja sveitarfélagið. Upphaflega bárust 73 tillögur um nafn á sveitarfélagið og var örnefnanefnd fengin til að meta þær og fækka valkostum. Mælti nefndin með þremur nöfnum; þ.e. Þórsnesþing, Stykkishólmsbær og Sveitarfélagið Stykkishólmur. Bæjarstjórn ákvað síðan á fundi sínum í byrjun…Lesa meira

true

Greiða skaðabætur vegna úthlutunar á ófullnægjandi byggingalóðum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í liðinni viku var samþykkt að greiða samtals um níu milljónir króna í skaðabætur vegna tveggja lóða sem úthlutað var árin 2021 og 2022. Þann 11. mars 2021 var byggingarleyfi veitt lóðarhöfum að Mávakletti 10 í Borgarnesi og hófst bygging á lóðinni í framhaldinu. Í ljós kom að lóðin hafði ekki…Lesa meira

true

Háskólinn á Bifröst hefur opnað nýtt upptökuver

Háskólinn á Bifröst er leiðandi í fjarnámi á landsvísu en nú hefur veglegu hljóð- og myndveri verið komið upp innan skólans. Á vef skólans kemur fram að upptökuverið muni koma til með að bæta alla aðstöðu til framleiðslu á fyrirlestrum, hlaðvörpum og öðru stafrænu efni. Kennarar og nemendur munu nýta upptökuverið sem er einfalt og…Lesa meira

true

Rafíþróttir hefjast á Akranesi í byrjun febrúar

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) er samband þeirra félaga, íþróttafélaga, héraðssambanda, félagsmiðstöðva, frístundamiðstöðva og menntastofnana sem iðka eða keppa í rafíþróttum. Í lögum félagsins segir að rafíþróttir séu heilbrigð iðkun tölvuleikja í skipulögðu starfi og starfið feli í sér eftirfarandi: Æfingar í hóp, markvissar líkamlegar æfingar sem auka líkamlegt atgervi tengt árangri í rafíþróttum, markvissar æfingar í…Lesa meira

true

Stakkhamar 2 var afurðahæsta kúabú landsins á liðnu ári

Bú þeirra Laufeyjar Bjarnadóttur og Þrastar Aðalbjarnarsonar á Stakkhamri 2 í Eyja- og Miklaholtshreppi er á toppnum yfir afurðahæstu kúabúin á Íslandi, samkvæmt nýju uppgjöri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins úr skýrsluhaldi síðasta árs. Árið 2021 var búið í 13. sæti sama lista. Árskýr á búi þeirra eru 57,4 og skiluðu þær að meðaltali 8.910 kílóum hver. „Hér…Lesa meira

true

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts er farið í gang

Nú er hafið fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Markmið átaksins er að selja nýjar Lífið er núna húfur og vekja athygli á þeim áskorunum sem verða á vegi fyrir þau sem greinast með krabbamein sem og aðstandendum og hvernig Kraftur getur stutt við þau með…Lesa meira

true

Hætta eykst á flóðum – gul viðvörun í fyrramálið

Í nótt og morgun hefur rignt ákaft á vestan- og sunnanverðu landinu. Hiti er yfir frostmarki um allt land. Rigningin og hlýindin auka líkur á krapaflóðum, skriðum og grjóthruni. Rétt fyrir klukkan 10 í morgun féll krapaflóð á Patreksfirði og þá hafa einnig fallið lítil krapaflóð ofan Bíldudals og í Arnarfirði á Vestfjörðum. „Ekki er…Lesa meira

true

Árni Snær gengur til liðs við Stjörnuna

Markvörðurinn Árni Snær Ólafsson hefur skrifað undir samning við Stjörnuna en hann hefur leikið allan sinn feril hjá ÍA og á alls að baki 179 deildarleiki fyrir félagið. Árni er 31 árs og lék 17 af 27 deildarleikjum ÍA á síðasta tímabili. „Það er mjög spennandi að fá Árna til okkar. Hann er frábær karakter…Lesa meira