
Stakkhamar 2 var afurðahæsta kúabú landsins á liðnu ári
Bú þeirra Laufeyjar Bjarnadóttur og Þrastar Aðalbjarnarsonar á Stakkhamri 2 í Eyja- og Miklaholtshreppi er á toppnum yfir afurðahæstu kúabúin á Íslandi, samkvæmt nýju uppgjöri Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins úr skýrsluhaldi síðasta árs. Árið 2021 var búið í 13. sæti sama lista. Árskýr á búi þeirra eru 57,4 og skiluðu þær að meðaltali 8.910 kílóum hver. „Hér er höggvið nærri Íslandsmeti Brúsastaða í Vatnsdal frá árinu 2016 sem er 8.990 kg/árskú. Á Stakkhamri 2 er legubásafjós með mjaltaþjóni sem tekinn var í notkun veturinn 2021-22. Ekki er annað að sjá en kýrnar kunni þeirri breytingu vel en afurðir á búinu jukust um 845 kg/árskú milli ára. Þetta er í annað sinn sem Stakkhamar skipar efsta sæti lista yfir afurðahæstu bú á einu almanaksári en árið 2006 varð raunin einnig sú. Þá skiluðu kýrnar þar 7.896 kg mjólkur/árskú sem á þeim tíma var Íslandsmet,“ segir í skýrslu RML. Toppbúið á síðasta ári, Búrfell í Svarfaðardal, fellur nú niður í sjötta sæti listans.