Fréttir

true

Asahláka og golfvöllurinn á kafi í vatni

Mikil úrkoma var í nótt og fram á daginn á Snæfellsnesi og hávaðarok. Samhliða veðrinu eru miklar leysingar. Ræsi á Fróða er stíflað, eða hefur ekki undan, og við þær aðstæður er golfvöllurinn á Fróðá skammt austan við Ólafsvík bókstaflega á kafi í vatni og umflotið er að golfskálanum. Vatn rann inn í húsið Varmlalæk…Lesa meira

true

Rótarýklúbburinn styður við uppbyggingu Kviku í MB

Í liðinni viku fékk Menntaskóli Borgarfjarðar góða gesti þegar félagar í Rótarýklúbbi Borgarness litu við. Félagar í klúbbnum þáðu kvöldverð og kynningu á starfi skólans. Við þetta tilefni tilkynnti klúbburinn að hann myndi veita MB veglegan styrk til uppbyggingar Kviku, skapandi rými í skólanum. Styrkurinn er veittur úr sjóði er ber heitið Hvatningarsjóður og hefur…Lesa meira

true

Frístund Grundaskóla flytur í Garðasel

Í morgun hófust flutningar frístundar Grundaskóla á Akranesi yfir í fyrrum húsnæði leikskólans Garðasels við Lerkigrund en leikskólinn flutti um síðustu helgi alla sína starfsemi í nýjan leikskóla á Asparskógum í Skógarhverfi. Unnið er nú af krafti í margvíslegum endurbótum á húsnæði gamla Garðasels sem fær nú nafnið Grundasel og verður það málað, húsmunir endurnýjaðir…Lesa meira

true

Gripið til aðgerða gegn tryggðasvikum

Dómsmálaráðherra hefur falið embætti ríkislögreglustjóra að grípa til sérstakra aðgerða vegna stafræns ofbeldis með áherslu á tryggðasvik, kynbundið ofbeldi á netinu og áframhaldandi úrbætur innan réttarvörslukerfisins. Þetta er í samræmi við tillögur starfshóps um forvarnir og vitundarvakningu gegn kynferðisbrotum og kynbundnu ofbeldi. Áhersla verður lögð á miðlun upplýsinga til almennings, áframhaldandi endurskoðun á verklagi og…Lesa meira

true

Fámennt á tjaldstæðinu í Borgarnesi

Þrátt fyrir að nú gangi hver lægðin á fætur annarri yfir landið með frosti, rigningu eða roki til skiptis, er gönguferðamenn engu að síður að finna. Meðfylgjandi mynd er að búnaði gönguferðamanns sem nú fer um landshlutann. Arkar hann um vegina með vagn í eftirdragi. Komst maður þessi í frétt hjá Skessuhorni eftir að lögregla…Lesa meira

true

Kuldakast orsakar tafir á framkvæmdum á Borgarbraut

Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarna mánuði á Borgarbraut í Borgarnesi þar sem verið er að endurnýja fráveitulagnir og yfirlag á hluta götunnar. Verkfræðingur frá Eflu mætti til fundar byggðarráðs Borgarbyggðar 19. janúar síðastliðinn og fór yfir stöðu framkvæmdanna. Í fundargerð segir að kuldi hafi stöðvað framkvæmdir í vetur og töluverðar tafir hafi því orðið á…Lesa meira

true

Snæfell með sterkan sigur á Stjörnunni

Stjarnan og Snæfell mættust í toppslag í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Fyrir leikinn hafði Stjarnan fjögurra stiga forskot á Snæfell í deildinni og með sigri gat Snæfell því minnkað muninn í tvö stig. Leikurinn fór frekar rólega af stað og staðan var jöfn 10:10…Lesa meira

true

Sérstök þjónusta í boði fyrir börn með ungbarnakveisu

Foreldrar ungbarna og tilvonandi foreldrar geta nú andað örlítið léttar en áður. Domus barnalæknar hafa skipulagt sérstaka þjónustu fyrir óvær ungbörn, þ.e. ungbörn sem gráta mikið og gætu haft ungbarnakveisu. Þetta kemur fram á vef Domus barnalækna. „Ungbarnakveisa lýsir sér með endurteknum og langdregnum grátköstum á fyrstu vikum og mánuðum ævinnar sem foreldrar geta ekki…Lesa meira

true

Iðnaðarhúsnæði að rísa í Flóahverfi

Við Lækjarflóa í Flóahverfinu rétt utan Akraness er í byggingu ríflega 1.200 fermetra húsnæði sem mun innihalda átján svokölluð iðnaðarbil sem verða hvert um 66 fermetrar að stærð og með lofthæð upp að sjö og hálfum metra. Það eru Skagamennirnir Þórður Ásmundsson og Björn Þór Bjarnason sem standa að byggingu þessa húsnæðis og segir Þórður…Lesa meira

true

Lionsfélagar í Stykkishólmi færa FSN veglega gjöf

Fjölbrautaskóla Snæfellinga bárust á dögunum veglegar gjafir frá Lionsklúbbi Stykkishólms, að verðmæti 600 þúsund krónur. Inni í þessum pakka eru tveir þrívíddar prentarar, hitapressa til að pressa á fatnað og búnaður til að hanna og prenta út slíkar merkingar. Allur kemur þessi búnaður sér vel fyrir kennslu á nýsköpunar- og frumkvöðlabraut sem kennd er við…Lesa meira