
Starfsmenn Grundaskóla standa nú í flutningum. Ljósm. grundaskoli.is
Frístund Grundaskóla flytur í Garðasel
Í morgun hófust flutningar frístundar Grundaskóla á Akranesi yfir í fyrrum húsnæði leikskólans Garðasels við Lerkigrund en leikskólinn flutti um síðustu helgi alla sína starfsemi í nýjan leikskóla á Asparskógum í Skógarhverfi. Unnið er nú af krafti í margvíslegum endurbótum á húsnæði gamla Garðasels sem fær nú nafnið Grundasel og verður það málað, húsmunir endurnýjaðir og margt fleira gert. Fram kemur á heimasíðu Grundaskóla að nemendur og starfsmenn geti vart beðið eftir formlegum flutningum og víglu á nýrri aðstöðu því þessar breytingar verði algjör bylting fyrir frístundastarfið í Grundaskóla.