
Asahláka og golfvöllurinn á kafi í vatni
Mikil úrkoma var í nótt og fram á daginn á Snæfellsnesi og hávaðarok. Samhliða veðrinu eru miklar leysingar. Ræsi á Fróða er stíflað, eða hefur ekki undan, og við þær aðstæður er golfvöllurinn á Fróðá skammt austan við Ólafsvík bókstaflega á kafi í vatni og umflotið er að golfskálanum. Vatn rann inn í húsið Varmlalæk í Klettakotslandi. Gera má ráð fyrir að töluverðar skemmdir verði einnig á golfvellinum. Vegurinn yfir Fróðárheiði er nú lokaður og samkvæmt heimildum Skessuhorns er það vegna vatnsaga.