Szimi og Áslaug Ragnhildardóttir á Hótel Húsafelli taka hér á móti Jóhannesi Þór Skúlasyni framkvæmdastjóra SAF. Ljósmyndir: Skessuhorn/mm

Myndasyrpa frá Mannamóti

Mannamót markaðsstofa landshlutanna eru góður vettvangur til að mynda tengsl, ræða við gesti og þá ekki síður samstarfsfólk í ferðaþjónustu. Jafnvel nágranna sem hafa sömu hagsmuni; að taka á móti gestum og veita sem besta þjónustu í heimabyggð. Síðast en ekki síst er Mannamót vettvangur til að stofna til viðskipta. Það var venju fremur góð stemning á Mannamóti sem haldið var í Kórnum í Kópavogi 19. janúar sl. Mannamóti var aflýst 2021 en á síðasta ári var það í marsmánuði og fámennara en venjulega sökum Covid-19. Það eru markaðsstofur landshlutanna sem standa fyrir Mannamóti, en þangað er m.a. boðið starfsfólki ferðaskrifstofa, hótela, ráðamanna, fjölmiðla og annarra sem vilja kynna sér það sem efst er á baugi og nýjungar á vettvangi ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Að þessu sinni voru það fulltrúar 230 fyrirtækja í ferðaþjónustu sem kynntu starfsemi sína. Af þeim voru 37 frá Vesturlandi, sem er nánast helmingi betri þátttaka en í mars á síðasta ári.

Myndasyrpa frá Mannamóti - Skessuhorn