Fréttir

true

Foreldrasími Heimilis og skóla

Heimili og skóli, landssamtök foreldra, hafa aukið við þjónustu sína og eru farin að bjóða upp á Foreldrasíma Heimilis og skóla. Foreldrasíminn er hugsaður fyrir foreldra og fagfólk til að fá ráðgjöf og stuðning. Í Foreldrasímanum eru veittar upplýsingar um hvert skal leita með mál og ráðgjöf veitt eftir atvikum til að styðja við og…Lesa meira

true

„Þú þarft einhvern sem getur sagt þér til og þannig náð árangri“

Rætt við Hjördísi Eyþórsdóttur sem í þrjá áratugi hefur haft bridds að atvinnu Hjördís Eyþórsdóttir er sá Íslendingur sem náð hefur lengst í briddsíþróttinni. Hún hefur nú í nær þrjá áratugi starfað í Ameríku sem atvinnumanneskja í bridds og hefur lifibrauð sitt af því að kenna öðrum íþróttina og keppa við þá á mótum hvort…Lesa meira

true

Vilja að Vesturgata 62 og Suðurgata 57 verði seld

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar síðasta föstudag lýsti bæjarráð þeim vilja að húsið Vesturgata 62, gamla íþróttahúsið, verði selt á almennum markaði en með tilteknum kvöðum sem meðal annars varða tímalínu endurbóta, rif á viðbyggingu og hugmynda um fyrirhuguða notkun á húsinu. Afla þarf heimildar frá framkvæmdasýslu ríkisins vegna þessa en stofnunin fer með eignarhluta ríkisins…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir KR í Krakkakvissi

Önnur viðureignin í átta liða úrslitum Krakkakviss var sýnd á Stöð 2 síðasta föstudagskvöld. Þar áttust við gömlu erkifjendurnir ÍA og KR og óhætt að segja að um spennandi viðureign hafi verið að ræða. Lið ÍA var skipað þeim Ólöfu Oddnýju Jansen og Pétri Steini Gunnarssyni sem eru í Grundaskóla og Aðalheiði Ísold Pálmadóttur úr…Lesa meira

true

Samið til tveggja ára um snjómokstur

Í liðinni viku var undirritaður samningu Hvalfjarðarsveitar og Vegagerðarinnar um snjómokstur í sveitarfélaginu. Samið var til tveggja ára við Miðfellsbúið ehf. um að sjá um snjómokstur og hálkueyðingu í sveitarfélaginu fyrir tímabilið janúar 2023 til janúar 2025. Meðfylgjandi mynd af undirritun samningsins er fengin af vef Hvalfjarðarsveitar, en á henni eru f.v. Sigurður Þór Runólfsson…Lesa meira

true

Bílvelta á Faxabraut

Skömmu eftir hádegi í dag valt jeppabifreið á Faxabraut á Akranesi og hafnaði utan vegar. Ökumaður var einn í bílnum og var hann færður með sjúkrabíl undir læknishendur. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði hann verið í öryggisbeltum og er ekki alvarlega slasaður. Bíllinn, sem er gamall jeppi, er hins vegar illa farinn og líklega ónýtur.Lesa meira

true

Velja samfélagsþjónustu fremur en að greiða dómsektir

Um miðjan janúar síðastliðinn gaf Ríkisendurskoðun út skýrslu um stöðu innheimtu dómsekta. Slík úttekt var síðast framkvæmd árið 2009. Nú kemur í ljós að nær engin breyting hefur orðið á innheimtu dómsekta síðan þá. ,,Álagðar dómsektir sem námu 10 milljónum króna eða meira á tímabilinu 2014-18 voru að heildarfjárhæð 5,7 milljarðar króna. Af þeim höfðu…Lesa meira

true

Nýtt mælitæki sett í veg

Verkfræðistofan Vista, í samstarfi við Vegagerðina, hefur lokið við að setja upp aflögunarmæli (e. Shape Acceleration Array) í vegstæði þar sem nýi vegurinn þverar Þorskafjörð. Á vef Reykhólahrepps segir að um sé að ræða fyrsta mælinn af þessu tagi frá Measurand sem settur er upp á Íslandi til að mæla jarðvegsaflögun á láréttum fleti en…Lesa meira

true

Unnið að gerð heimildamyndar í Grundaskóla

Þessa dagana vinna bæði kennarar og nemendur Grundaskóla á Akranesi að gerð heimildamyndar um söngleiki sem færðir hafa verið upp í skólanum. Fjöldi fólks kemur að gerð myndarinnar, bæði núverandi og fyrrverandi nemendur og starfsmenn. Fram kemur á heimasíðu Grundaskóla að búið sé að setja upp sérstakt myndver í skólanum til að taka myndefni og…Lesa meira

true

Komu vegfarendum til aðstoðar

Í gærkvöldi aðstoðuðu björgunarsveitir þó nokkra vegfarendur á norðanverðu Snæfellsnesi. Veður var mjög slæmt á þessum slóðum; blint og hvasst. Engin lokunarhlið eru t.d. á veginum að Vatnaleið og þangað óku því ferðamenn og komu sér í vandræði. Björgunarsveitin Berserkir í Stykkishólmi aðstoðaði vegfarendur á Vatnaleið og kom þeim til Stykkishólms. Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ…Lesa meira