Fréttir

true

Styðja ekki eitt útgerðarmynstur umfram annað

Smábátafélagið Snæfell í Snæfellsbæ, sem er aðildarfélag að Landssambandi smábátaeigenda, sendi í síðustu viku opið bréf til bæjarstjórnar Snæfellsbæjar. Í því kallar félagið eftir því að bæjarstjórn lýsi stuðningi við ósk félagsins til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leggja fram frumvarp til laga um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða sem fæli í sér að…Lesa meira

true

Frumkvöðlar heimsóttu Kviku

Frumkvöðlar sem saman voru komnir á ráðstefnuna Nýsköpun í vestri, sem haldin var í Hjálmakletti í Borgarnesi í gær, fengu kynningu á Kviku, skapandi rými í Menntaskóla Borgarfjarðar. Voru það Bragi Þór Svavarsson skólameistari, Valdís Sigurjónsdóttir umsjónaraðili Kviku og Signý Óskarsdóttir sem sýndu Kviku og kynntu þá námsþróun sem Menntaskóli Borgarfjarðar hefur unnið að undanfarin…Lesa meira

true

Tóku samtal um stöðu og stefnu Háskólans á Bifröst

Byggðarráð Borgarbyggðar ræddi á síðasta fundi sínum framtíðaráform Háskólans á Bifröst. Umræðan var að beiðni Thelmu Harðardóttur VG, áheyrnarfulltrúa í byggðarráði. Til fundarins mætti í gegnum fjarfundabúnað Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst. Byggðarráð þakkaði henni fyrir gott samtal og samþykkti í kjölfarið eftirfarandi ályktun: „Enginn háskóli á Íslandi er jafn ódýr í rekstri…Lesa meira

true

Matarsóun hér er á landi er einkum í sjávarútvegi og á heimilum fólks

Matarsóun á Íslandi jafngildir 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Þetta sýna niðurstöður nýrra mælinga sem Umhverfisstofnun framkvæmdi. Tæpur helmingur allrar matarsóunar átti sér stað í frumframleiðslu matvæla, en um 40% á heimilum og hefur umhverfisráðuneytið nú falið Umhverfisstofnun að hefja framkvæmd tveggja mikilvægra aðgerða úr aðgerðaáætlun stjórnvalda sem nefnist einfaldlega; Minni matarsóun. Mælingarnar…Lesa meira

true

Bændur fá 2,8% hækkun mjólkurverðs frá morgundeginum

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur 1. október til bænda og heildsöluverðs á ógerilsneyddri mjólk í lausu máli. Lágmarksverð til bænda hækkar um 2,82%, fer úr 126,20 kr./ltr í 129,76 kr./ltr. Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 2,3% 9. október nk. „Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til…Lesa meira

true

Bjóða sókninni líkhúsið að gjöf

Á fundi bæjarstjórnar Snæfellsbæjar síðastliðinn fimmtudag var lögð fram ályktun aðalsafnaðarnefndarfundar Ólafsvíkurkirkju varðandi líkhúsið í Ólafsvík. Bæjarfélagið á eins og kunnugt er húsið en sóknirnar hafa rekið það. Nú er umsjónaraðili hússins á förum úr bæjarfélaginu og ekki hefur fengist aðili í hans stað. Þá er fyrirsjáanlegt viðhald á húsinu. Var bókað á fundi bæjarstjórnar:…Lesa meira

true

Ingi Þór lætur af störfum

Ingi Þór Guðmundsson vann sinn síðasta vinnudag í Netagerð G.Run í Grundarfirði í gær, föstudaginn 29. september. Af því tilefni var blásið til veislu og kappinn kvaddur eftir áratuga starf. Ingi er einn af eigendum G.Run og hefur starfað við fjölskyldufyrirtækið frá barnsaldri. Hann var mörg ár á sjó áður en hann kom í land…Lesa meira

true

Ráðstefnan Nýsköpun í vestri fór fram í Borgarnesi – myndasyrpa

Ráðstefnan Nýsköpun í vestri er samstarfsverkefni Gleipnis, nýsköpunar- og þróunarseturs á Vesturlandi, Nývest og SSV en verkefnið er styrkt af Sóknaráætlun Vesturlands. Ráðstefnan fór í dag fram í Hjálmakletti í Borgarnesi en um fimmtíu manns taka þátt í ráðstefnunni sem fer nú fram í fyrsta skipti. Bjargey Anna Guðbrandsdóttir er framkvæmdastjóri Gleipnis sem stóð fyrir…Lesa meira

true

Ellefu fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands

Ellefu verkefni fengu styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands þegar úthlutun fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi í dag. Var dagskráin hluti af ráðstefnunni Nýsköpun í vestri sem hófst í morgun og lauk síðdegis. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir úthlutuninni en alls var rúmum 10,6 milljónum króna úthlutað. Bárust 23 umsóknir. Eftirfarandi verkefni hlutu styrki: Snæfellsnes…Lesa meira

true

„Markmiðið að halda sæti okkar í deildinni“

Kvennalið Snæfells í körfuknattleik leikur í Subway deildinni í vetur eftir nokkurra ára fjarveru. ÍR gaf frá sér sitt sæti í Subway deildinni í sumar en Snæfell endaði í þriðja sæti í 1. deild á síðasta tímabili. Síðast lék Snæfell í efstu deild tímabilið 2020-2021 en eftir það var tekin sú ákvörðun að færa liðið…Lesa meira