
Matarsóun hér er á landi er einkum í sjávarútvegi og á heimilum fólks
Matarsóun á Íslandi jafngildir 160 kílóum á hvern íbúa á ári. Þetta sýna niðurstöður nýrra mælinga sem Umhverfisstofnun framkvæmdi. Tæpur helmingur allrar matarsóunar átti sér stað í frumframleiðslu matvæla, en um 40% á heimilum og hefur umhverfisráðuneytið nú falið Umhverfisstofnun að hefja framkvæmd tveggja mikilvægra aðgerða úr aðgerðaáætlun stjórnvalda sem nefnist einfaldlega; Minni matarsóun.